Vikuveiðin í laxveiðiánum síðustu daga er ágæt þegar á heildina er litið en það er ljóst að sumarið verður ansi misjafnt eftir landshlutum.
Vesturland virðist ætla að eiga ágætis sumar en veiðin þar er nokkuð jöfn en á líklega eftir að taka smá kipp eftir góðar rigningar sem halda ánum í góðu vatni fram á haust með nokkrum blautum dögum til viðbótar. Vikuveiðin í Ytri Rangá var í síðustu viku 594 laxar sem deilist á 18 stangir og gefur þar með 33 laxa á stöng í hverri viku sem er frábær veiði. Eystri Rangá gaf 23 laxa á hverja dagstöng og Miðfjarðará gaf 32 laxa á hverja dagsstöng.
Hæsta veiðin á stöng á landinu var um árabil í Laxá á Ásum en þá var áin aðeins veidd á tvær stangir en þeim hefur nú verið fjölgað í fjórar. Heildarveiðin í henni er 637 laxar eða 160 laxar á stöng sem er frábær veiðitala í alla staði. Það veiðisvæði sem hefur tekið við af Laxá á Ásum sem aflahæsta veiðisvæði landins á stöng er Urriðafoss við Þjórsá sem við höfum útnefnt sem veiðisvæði ársins en heildarveiðin þar er 673 laxar á tvær stangir sem gefa 336 laxa á stöng. Það er þegar komin mikil eftirspurn eftir veiðileyfum þar fyrir næsta sumar og netadögum vegna þessarar frábæru veiði hefur fækkað mikið og líklega eftir að fækka en frekar.
