Kaupverðið er sagt vera 96,8 milljónir punda, með möguleika á viðbótargreiðslum sem gætu hækkað verðið upp í 135,5 milljónir punda. Félagaskiptin eru því þau næst hæstu í sögunni, á eftir 200 milljóna punda sölunni á Neymar. Dembele er einmitt sagður koma til Barcelona til þess að fylla skarð Neymar.
„Ég er mjög ánægður með að vera hér,“ sagði Dembele. „Það hefur alltaf verið draumurinn að spila fyrir Barcelona og ég er mjög glaður með að hafa uppfyllt þann draum.“
„Þetta er besta félag í heimi með bestu leikmenn í heimi.“
Dembele spilaði síðast fótboltaleik 5. ágúst, en hann var settur í bann hjá Dortmund eftir að hafa misst af æfingu hjá félaginu. Hann skoraði 10 mörk í 49 leikjum fyrir þýska félagið á síðasta tímabili.
#DembeleDay
Done deal
@Dembouzpic.twitter.com/3mmPZ1Kzzs
— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 28, 2017