„Viktor hann dettur og handleggsbrotnar og við förum með hann á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem vel er tekið á móti okkur og hann fer í aðgerð þar eru settir tveir pinnar í báðar pípur á framhandlegg. Við erum þar í sólarhring og hann er gipsaður og svo er okkur sagt að hann eigi tíma eftir þrjár vikur hér í Reykjavík en svo virðist sem hann eigi ekki tíma hér í Reykjavík. Við eigum semsagt bara að mæta með hann aftur á slysó og bíða eftir að komast að“ segir Ásdís og bætir við:
„Ég hélt bara að þetta væri eitt batterí sem talaði saman og það skipti ekki máli í hvaða landsfjórðungi maður slasaðist eða veiktist, að maður væri velkominn að panta sér tíma þar sem væri næst.“
En hvað segir heilbrigðisráðherra, er möguleiki á að samtvinna verkferla á milli heilbrigðisstofnanna?
„Já það er möguleiki að samþætta verkferlana betur og mikil þörf á því, við héldum fyrir helgi samráðsfund með forstöðumönnum heilbrigðisstofnana allstaðar að af landinu og þetta var eitt af þeim málum sem sett var hvað efst á bauginn þar.“
Heilbrigðisráðherra segir einnig nauðsynlegt að einstaklingar viti hvert á að leita innan heilbrigðiskerfisins.
„Þetta er eitt af okkar áhersluatriðum hérna í Ráðuneytinu að einmitt hjálpa stofnunum til við að auka samstarfið og auka upplýsingagjöf og samvinnu líka við sjúklingana þannig að fólk viti betur hvert á að leita og hvernig það fái sem bestu þjónustu á sem einfaldastan hátt.“ segir Óttarr Proppé.