Hóta því að „sökkva“ Japan með kjarnorkuvopnum 14. september 2017 13:13 Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Norður-Kóreumenn hótuðu því í dag að sökkva Japan með kjarnorkuvopnum og gera Bandaríkin að „ösku og myrkri“. Það vilja þeir gera vegna nýjustu refsiaðgerða öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem beinast gegn Norður-Kóreu vegna nýjustu kjarnorkuvopnatilrauna ríkisins. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá stofnuninni Korea Asia-Pacific Committee sem heldur utan um utanríkismál Norður-Kóreu og áróður ríkisins. Samkvæmt frétt Reuters kallaði stofnunin eftir því að öryggisráðið yrði fellt niður og sagði það vera „tól illsku“ og aðildarríki þess væru leppar Bandaríkjanna sem búið væri að múta.Sjá einnig: Ætlað að ráða Kim Jong-un af dögumÍ tilkynningu frá stofnunni, sem finna má á vef ríkismiðils Norður-Kóreu, KCNA, segir að Japan þjóni engum tilgangi og réttast væri að sökkva fjórum eyjum eyjaklasans með kjarnorkuvopnum. Þar að auki sagði í tilkynningunni að Norður-Kóreumenn ættu að beita öllum ráðum til að gera Bandaríkin að ösku og myrkri. Fimmtán aðildarríki öryggisráðsins kusu öll á mánudaginn að herða aðgerðir gegn Norður-Kóreu. Að þessu sinni var sett bann á útflutning ríkisins á vefnaðarvörum og að draga úr innflutning á eldsneyti.
Norður-Kórea Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira