Allskonar svartar innsetningar eru bæði á ytra og innra byrði bílsins, svona til að gera hann aðeins sportlegri. Hann fær stigbretti á hliðarnar og kemur á 20 tommu felgum. Toyota hefur ekki breytt innréttingu bílsins að neinu ráði frá því hann kom fyrst á markað á síðasta áratug síðustu aldar, en nú verður hún aðeins krydduð upp og gerð nútímalegri.
Áfram verður 4,0 lítra V6 bensínvél undir húddinu sem tengd er við 5 gíra sjáfskiptingu. Bíllinn er að sjálfsögðu fjórhjóladrifinn. Ekki er gert ráð fyrir framleiðslu margra eintaka af þessari lokaútgáfu bílsins og heyrst hefur að eintökin verði aðeins 200.
Kannski munu einhverjir sjá á eftir þessum „Retro“-útlits bíl, en slíkum bílum, sem birtust margir á síðasta áratug síðustu aldar, fer nú óðum fækkandi og gott dæmi um það er PT Cruiser bíllinn frá Chrysler sem hætt var að framleiða árið 2010.
