Alls tóku 293 leikmenn þátt í könnuninni og svöruðu 274 spurningunni hvort þau vildu að lokahófið yrði endurvakið játandi. Þá var mikill meirihluti sem sagðist myndu mæta á hófið yrði það endurvakið.
Leikmannasamtökin fóru í framhaldinu í þá vinnu að skipuleggja hófið, sem átti að fara fram á föstudaginn. Óhætt er að segja að um veglegt hóf hefði verið að ræða. Þriggja rétta matseðill, Sveppi og Auddi í veislustjórn og Stuðmenn að spila fyrir balli sem átti að vera í Kaplakrika. Miðaverð var 15 þúsund krónur sem áttu að skiptast jafnt milli KSÍ, félaganna og leikmanna
Málið hafi strandað, að sögn Kristins Björgúlfssonar formanns Leikmannasamtaka Íslands, á félögunum í Íslenskum Toppfótbolta þegar kom að kostnaðinum. Óskað hafði verið eftir 150 þúsund krónum frá hverju félagi sem formenn félaganna töldu of mikið.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Bítinu á Bylgjunni í gær að hann vildi halda veglegt lokahóf KSÍ.
„Ég ræddi þetta fyrir tímabilið við fyrirliða félaganna og forsvarsmann leikmannasamtakanna þar sem var rætt um að koma þessu á. Þó auðvitað með þeim fyrirvara að það væri í samvinnu við félögin í deildinni,“ sagði Guðni.
„KSÍ var tilbúið að koma að þessu en það tókst einhverra hluta vegna ekki að koma þessu á legg með félögunum. Ég myndi vilja setjast niður með félögunum og ræða þetta því mér finnst vera meiri bragur á því að halda veglegt lokahóf.“
„Nú eru félögin sjálf með sín lokahóf sem jafnvel eru líka fjáröflun fyrir félögin. Ég sjálfur setti á oddinn að vera með lokahóf en það verður illa gert án aðkomu félaganna.“
Bætti Guðni við á léttum nótum að fólk sem þekkti til hans vissi að hann væri alltaf til í gott partý.

Lokahóf KSÍ fóru fram á Broadway á Hótel Íslandi um árabil. Þar mættu leikmenn, borðuðu góðan mat og svo voru verðlaunahafar heiðraðir á sviði.
Óhætt er að segja að á hápunkti sínum hafi verið um að ræða mikið partý þar sem knattspyrnufólk tók vel á því. Fjara fór undan lokahófunum fyrir um tíu árum og færði Knattspyrnusamband Íslands lokahófið í Háskólabíó þar sem boðið var upp á pinnamat.
Í framhaldinu var prófað að halda hófið í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. Í fyrra og aftur í ár voru verðlaunahafar svo einfaldlega heiðraðir að loknum síðasta leik. Bestu og efnilegustu leikmenn auk markaskorara.

Kristinn Björgúlfsson hjá Leikmannasamtökunum útskýrir að undirbúningur fyrir lokahófið hafi hafist um leið og Guðni var kosinn formaður KSÍ í febrúar.
Samtökin funduðu með fyrirliðum liðanna og eftir að niðurstöður úr könnuninni afgerandi lágu fyrir fóru þeir á fund Íslensks Toppfótbolta og kynntu plön sín. Undirtektirnar voru ekki sérstakar að sögn Kristins og enn dræmari þegar óskað var eftir 150 þúsund krónum frá hverju liði í lokahófið.
Var það að tillögu Guðna að allir kæmu að hófinu saman, allir legðu eitthvað til.
Vegna þess að hófið þótti of dýrt var farið í að breyta hófinu. Í stað þess að vera með þriggja rétt boð í Kaplakrika var lagt upp með standandi pinnapartý í Gamla bíó. Dagskráin var eftirfarandi:
18:30 Húsið opnar með fordrykk
18:45 Landsleikur Tyrkland – Ísland.
21:15 Formleg dagskrá hefst. Sveppi verður kynnir kvöldsins
21:30 Pepsímörk Karla 15 mín. Ræða og video
21:45 Úrvalslið Pepsí Karla kynnt 20-30 mín
22:15 Pepsímörk kvenna ræða og video 15 mín.
22:30 Úrvalslið kvenna kynnt 20-30 mín
23:00 Sveppi 15 mín
23:15 Adidas veitir Gull, Silfur og Brons skó.10 -15 mín
23:30 Bestu dómarar karla og kvenna 10 - 15 mín
23:45 Efnilegustu leikmenn karla og kvenna kynntir
00:15 Bestu leikmenn karla og kvenna kynntir
00:45 Sveppi lokar kvöldinu
01:00 lokahófi lýkur

Leikmannasamtökin óskuðu eftir 50 þúsund krónu framlagi frá hverju liði í nýja útfærslu hófsins en félögin sögðu ekki möguleika á að leggja pening í hófið.
„Þar með dró KSÍ sinn stuðning tilbaka fyrir hófinu og þar sem þetta gerist svo seint þá var ekki annað hægt en að setja hófið á ís þar til næsta ár. Við erum þegar byrjuð að vinna í lokahófinu á næsta ári og greinilegt að kynningin þarf að verða betri og félögin þurfa að vilja taka þátt,“ segir Kristinn.
Handknattleikssamband Íslands og Körfuknattleikssamband Íslands standa fyrir lokahófum og greinilegt er að vilji leikmanna er fyrir því að hófið verði endurvakið hjá KSÍ.
„Við höfum ítrekað sagt að við skulum halda hófið, standa fyrir skipulagningu og vinna með ÍTF og KSÍ í þeim efnum,“ segir Kristinn.
Að neðan má sjá myndasyrpu frá lokahófum KSÍ á árunum 2003 til 2007 þegar þau fóru enn fram á Broadway. Eins og sjá má var mikil stemmning á hófunum.