„Þetta var heljarinnar hringur, það er lítið grip hérna, ég þurfti að vanda mig mikið. Ég lenti í smá vandræðum í sjöttu beygju og þurfti að setja bílinn niður í fyrsta gír en það slapp og ég tapaði engum tíma,“ sagði Vettel eftir tímatökuna.
„Við verðum að taka allt út úr öllum þeim skiptum sem við förum út á brautina, allar æfingar, tímatökur og keppnir. Titillinn er auðvitað ekki eins mikið í okkar höndum og við hefðum viljað,“ bætti Vettel við.
„Ég er afskaplega pirraður. Ég er auðvitað nokkuð sáttur við annað sæti en það er ekki það sem við ætluðum. Ég verð með nokkuð góða rásstöðu á morgun,“ sagði Max Verstappen á Red Bull sem varð annar.
„Þeir voru afar fljótir á undan okkur í dag. Ég held að síðasti hringurinn hafi geta verið aðeins hraðari en þeir voru of fljótir. Vonandi get ég átt góðan slag á morgun,“ sagði Lewis Hamilton sem varð þriðji í dag á Mercedes.
„Þetta kom bara frá okkur, við gefumst aldrei upp. Ef maður vill ekki gefast upp þá verður maður að vinna hart að þessu,“ sagði Maurizio Arrivabene liðsstjóri Ferrari.

„Við misstum gripið og skildum ekki hvernig það hvarf eða hvert. Við reyndum allt til að ná því til baka en við snertum bílinn ekki svo þetta er afar skrítið og pirrandi. Það gerði mér ekki auðvelt að setja góðan tíma. Ef við náum áttum og skiljum bílinn og hvað gerðist í tímatökunni þá eigum við möguleika á verðlaunapalli á morgun,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð sjöundi á Red Bull.
„Þetta var flókið, ég var að reyna að setja saman einn fullkominn hring og það var mjög erfitt. Það voru alltaf einhver mistök hér og þar, því miður,“ sagði Kimi Raikkonen sem varð fimmti í dag.
„Við sýndum enn aftur að bíllinn okkar er góður, það að vera tveimur tíundu frá hraðasta manni í fyrstu lotu sýnir að sennilega í fyrsta skipti í þrjú ár vorum við með besta bílinn á brautinni,“ sagði Fernando Alonso sem mun ræsa aftast á morgun vegna refsinga fyrir nýja vélaíhluti í bíl hans.