#kosningar17 María Bjarnadóttir skrifar 27. október 2017 07:00 Þvílík lýðræðisveisla í einu landi. Árlegar þingkosningar á morgun, reglulegar forsetakosningar og sveitarstjórnarkosningar rétt handan við áramótin. Þess á milli er nóg af netkosningum um hvaða göngustíg eigi að flikka uppá fyrir peninginn frá frúnni í bæjarstjórastólnum eða hvaða kór/söngvari/jólastjarna komist áfram í úrslitaþáttinn í Háskólabíó/Hörpu/Laugardalshöll. Það er samt ekkert eins og að kjósa á kjördag á kjörstað. Það er svo notalegt að vera aðeins uppáklædd og nikka brosandi til nágrannanna, vitandi að við erum þarna í kjördeildinni til að Móta framtíðina saman (M). Við erum kannski ekki sammála um hvernig það verður best gert, en við Látum hjartað ráða för (S) og trúum því að við Gerum betur (V) í að búa til samfélag Fyrir okkur öll (D) með atkvæðinu okkar. Hvort sem við Kjósum Sigurð Inga og Lilju til forystu (B) eða einhverja aðra frambjóðendur, þá erum við öll viss um að fólkið sem við erum að kjósa leggi til grundvallar mikilvæg gildi á borð við Réttlæti, sanngirni og lýðræði (T) alveg óháð því hvort það vill Vinstri velferð, hægri hagstjórn (C) eða einhverja aðra leið að betra samfélagi. Sjónarmið margra heyrast hvort sem þeir vilja Burt með fátækt og spillingu (F) eða leggja áherslu á önnur mál. Það er ekki víst að allir kjósendur muni telja niðurstöður kosninganna fela í sér að við Tökum stjórn saman (R), því sumir telja mikilvægt að við Tökum til (A) fyrst, en aðrir segja að Framtíðin okkar (P) sé núna. Það er mikilvægt að njódda og livva, en líka að kjóssa. Megi #Kosningavakan verða góð og stjórnarmyndunarviðræður enn betri! Höfundur er pistlahöfundur Fréttablaðsins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Kosningar 2017 María Bjarnadóttir Mest lesið Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Halldór 31.05.2025 Halldór Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas Skoðun
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun