Anníe Mist vann heimsleikana tvö ár í röð frá 2011 og 2012 og fékk síðan silfur 2010 og 2014. Hún hafði hinsvegar glímt við meiðsli og náði ekki sínu besta fram á heimsleikunum 2015 og 2016.
Anníe Mist átti aftur á móti frábæra endurkomu á síðustu heimsleikum í ágúst þar sem hún vann bronsverðlaun og komst því um leið í fimmta sinn á pall á móti bestu crossfitara heims. Því hefur engin önnur kona náð.
Let's go for a walk with the third-fittest woman on Earth @IcelandAnniepic.twitter.com/FoVgVqFCXu
— The CrossFit Games (@CrossFitGames) October 15, 2017
„Árið 2016 var ég í besta formi sem ég hef nokkurn tímann verið í en ég held að ég hafi ekki verið komin í gegnum það andlega sem gerðist árið á undan. Ég var svo hrædd um að það sama gæti komið fyrir aftur,“ segir Anníe Mist í viðtalinu.
„Ég komst loksins í gegnum þetta í ár. Mér fannst ég aldrei vera ekki nógu góð til að standa mig eða komast á pall þessi tvö ár. Þetta var bara eitthvað sem ég hafði ekki stjórn á,“ segir Anníe Mist.
Caption this #meaningfulfistbump Moment captured by @heber_cannon
A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) on Oct 23, 2017 at 2:01pm PDT
Spyrillinn fékk Anníe Mist til að bera saman keppnisstaði heimsleikana sem fluttu frá Karólínuríki í ár og fóru nú fram í Madison í Wisconsin.
„Mér finnst frábært að ég hafi fengið að prófa þrjá mismunandi keppnisstaði á heimsleikunum,“ segir Anníe Mist sem segir að það hafi verið gott að keppa á sínum fyrstu heimsleikum á litlum leikvangi en það hafi síðan verið risastórt skref að fara á stóra leikvanginn í Carson í Kaliforníu.
„Það var frábært að skipta yfir til Madison. Ég á margar frábærar minningar frá Kaliforníu en ég á líka nokkrar slæmar. Það var mjög gott fyrir mig að komast á nýjan stað og byrja með hreinan skjöld. Mér fannst líka öll borgin í Madison vera á kafi í leikunum,“ sagði Anníe Mist.
Every day is a new opportunity to get better, get closer to your goal no matter what it is. Just gotta be willing to put in the work #getbettereveryday Photo by @martsromero
A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) on Oct 17, 2017 at 7:22am PDT
Evrópska liðið hefur titil að verja á CrossFit Invitational en hvað gerir evrópska liðið svona sterkt?
„Við erum með frábæran hóp af íþróttamönnum en við þekkjum hvert annað líka vel. Við höfum keppt saman áður og svo eru þrjú okkar frá Íslandi. Ég er ekki vafa um að við eigum góða möguleika á að vinna í ár. Við erum líka öll ekki að stressa okkur mikið á hlutunum og hvetjum líka hvert annað,“ sagði Anníe Mist en með henni í Evrópuliðinu eru þau Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Björgvin Karl Guðmundsson og Jason Smith. Samantha Briggs þjálfar liðið.
The Europe Team for the 2017 CrossFit Invitational will be comprised of four 2017 Meridian Regional athletes: https://t.co/GtIWk2fBII
— The CrossFit Games (@CrossFitGames) October 5, 2017
„Ég hugsa vanalega ekki nema eitt ár fram í tímann og veit aldrei hvort ég ætli að mæta á næstu leika eða ekki. Mér leið rosalega vel eftir heimsleikana í ár og líkamlega og andlega er þetta eitt mitt allra besta ár á heimsleikunum,“ sagði Anníe Mist og bætti við:
„Ég er enn að þroskast sem íþróttamaður og finnst að ég geti bætti mig ennþá. Þetta er svo jafnt við toppinn sem gerir þetta enn meira spennandi og skemmtilegt. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera á næsta ár. Ég er samt að æfa eins og ég ætla að halda áfram og ætla ekki að stoppa alveg strax. Ég held ekki að ég sé að fara neitt,“ sagði Anníe Mist brosandi.
Það má finna allt viðtalið hér fyrir neðan.
.@IcelandAnnie discusses her plans for the 2018 season and the upcoming CrossFit Invitational. pic.twitter.com/ubAiMISobk
— The CrossFit Games (@CrossFitGames) October 24, 2017