Frá og með árinu 2020 verða allir nýir bílar frá Jaguar Land Rover búnir rafmótor sem fram á tæknihátíðinni Tech Fest sem Jaguar stóð nýlega fyrir í Lundúnum þar sem bílaframleiðandinn kynnti framtíðarsýn sína til næstu ára. Í máli Ralf Speth, forstjóra Jaguar Land Rover kom fram að árið 2020 muni marka viss þáttaskil og auka fjölbreytni í vali viðskiptavina þegar kemur að kaupum á hentugasta nýja bílnum.
Fyrsti rafbíllinn er I-Pace
Jaguar setur nýjan lúxusbíl á markað á næsta ári, I-Pace, sem verður fyrsti hreini rafmagnsbíll fyrirtækisins á almennum markaði. Fyrir er í notkun kappakstursbíll í sérkeppni FIA Formula E Championship, en hann hefur leikið stórt hlutverk hjá fyrirtækinu í þróun rafmagnstækninnar sem nú er verið að innleiða í bílum Jaguar Land Rover fyrir almennan markað.
Jaguar E-Type Concept Zero
Á Tech Fest sýndi Jaguar t.d. endurgerða útgáfu af frægasta kappakstursbíl sögunnar, E-Type Roadster árgerð 1968 sem Enzo Ferrari sagði eitt sinn að væri fallegasti bíll sem nokkru sinni hefði verið hannaður. Bílnum hefur verið breytt á þann veg að í stað bensínvélarinnar hefur verið komið fyrir mjög öflugum rafmótor sem skilar Jaguar E-Type Concept Zero á rétt rúmum 5 sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Jaguar íhugar framleiðslu á bílnum fyrir almennan markað skapist nægileg eftirspurn frá viðskiptavinum.
Sayer í Future-Type
Þá hefur Jaguar ennfremur viðrað frekari hugmyndir í samgöngumálum sem fyrirtækið sér fyrir sér að verði veruleikinn í heimi ökumanna þegar á árinu 2040. Framtíðarsýnin endurspeglast í Jaguar FUTURE-TYPE, hreinum rafmagnsbíl sem verður fullkomlega sjálfvirkur í umferðinni. FUTURE-TYPE munu viðskiptavinir Jaguar Land Rover geta pantað til sín þegar þeim hentar, hvort sem er heim, á vinnustaðinn eða þangað þar sem viðkomandi eru staddir hverju sinni.
Meginhugmynd Jaguar er falin í Sayer, fyrsta gagnvirka og tengda stýrishjóli sinnar tegundar í heiminum sem verður í raun eini hluturinn sem ökumenn munu eiga sjálfir í bifreiðum framtíðarinnar. Sayer taka eigendur með sér hvert sem er á ferðum sínum og verður stýrið hluti heimilishaldsins og fært um að sinna margvíslegum verkefnum fyrir fjölskylduna.
Allir bílar Jaguar Land Rover verða rafvæddir frá og með 2020
