Benz sýningar í Reykjavík og á Akureyri Finnur Thorlacius skrifar 9. nóvember 2017 14:42 Mercedes Benz S-Class.
Bílaumboðið Askja mun halda Mercedes-Benz sýningar í Reykjavík og á Akureyri nk. laugardag 11. nóvember. Sýningin í Reykjavík verður haldin í höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11 klukkan 12-16 og þar verður lögð sérstök áhersla á A-Class, CLA og GLA sem hafa verið mjög vinsælir. Í salnum verða einnig tveir sérlega flottir lúxusbílar, S-Class og E-Class, sem vekja ávallt athygli. Sýningin á Akureyri verður haldin hjá Höldi klukkan 11-16 á laugardag og verða þrír bílar í sýningarsalnum; GLA, CLA og GLC. Þá verður boðið upp á reynsluakstur á sjö bílum; A-Class, B-Class, GLC, GLE, GLA, CLA og GLS. ,,Það er ánægjulegt að geta boðið upp á tvær bílasýningar á sama tíma, bæði í höfuðborginni og í höfuðstað Norðurlands," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla. "Við munum bjóða upp á veglegan kaupauka fyrir þá sem festa kaup á nýjum Mercedes-Benz, en með öllum bílum sem Askja á til afhendingar strax fylgja sumar- og vetrardekk ásamt alþrifum fyrir bílinn í heilt ár, sagði Ásgrímur ennfremur"
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent