Einungis einu sinni í níu keppnum hefur ökumanni tekist að vinna í Abú Dabí eftir að hafa ræst aftar en á fremstu ráslínu. Það gerði Kimi Raikkonen, þá á Lotus. Hann vann keppnina 2012 eftir að hafa ræst fjórði.
Fyrsta lota
Bottas var fljótastur í fyrstu lotunni á nýju brautarmeti. Hamilton var rétt á eftir litlu á eftir liðsfélaga sínum.
Þeir sem féllu úr leik í fyrstu lotu voru: Toro Rosso ökumennirnir, Sauber ökumennirnir og Romain Grosjean á Haas.
Lance Stroll á Williams stal 15. sætinu af Grosjean undir lok lotunnar og sendi frakkann niður í fallsæti.

Munurinn á milli þess að komast áfram í þriðju lotu eða sitja eftir var afar lítill. Fernando Alonso á McLaren var fyrir síðustu tilraunina með 0,172 sekúndna forskot á liðsfélaga sinn, Stoffel Vandorne sem var í 11. sæti og þar með úr leik eins og staðan var þá. Felipe Massa sló Alonso út í sinni síðustu tilraun í lotunni.
Hamilton var fljótastur í lotunni og Bottas varð annar.
Þeir sem féllu úr leik í annarri lotu voru: Stroll á Williams, Kevin Magnussen á Haas, McLaren ökumennirnir og Carlos Sainz á Renault.
Þriðja lota
Bottas kom af afli inn í þriðju lotuna og hans fyrsti hringur var nógu góður til að standast fyrstu áhlaup allra annarra. Eftir fyrstu tilraunir allra var Bottas fremstur og Hamilton annar. Bottas og Hamilton mistókst að bæta tíma sína í annarri tilraun.
Bottas hélt því ráspólnum og staðan breyttist ekki á milli fremstu manna.