Charles Manson látinn Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. nóvember 2017 06:27 Charles Manson er einhver alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna. Vísir/AFP
Charles Manson, sem fyrirskipaði fylgjendum sínum að myrða leikkonuna Sharon Tate og sex aðra í ágúst 1969, er látinn. Hann var 83 ára gamall. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir aðild sína að morðunum sem fyrir mörgum mörkuðu endalok hippatímabilsins í Bandaríkjunum. Manson er einhver alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna en hann átti sér fjölmarga fylgjendur, sér í lagi ungar konur, á sjöunda áratugnum. Hann myrti engan sjálfur en dómari taldi fullsannað að hann hafi fyrirskipað fjölda morða.Sjá einnig. Manson fluttur á sjúkrahúsManson hefur verið við dauðans dyr svo mánuðum skiptir. Hann var lagður inn á sjúkrahús í janúar síðastliðinn til að gangast undir aðgerð. Læknar mátu það hins vegar svo að hann væri of heilsuveill til að þola aðgerðina og var hann því sendur til baka í Corcoran-fangelsið þar sem hann hefur hírst í næstum 30 ár. Manson var upphaflega dæmdur til dauða en dómnum var breytt eftir að hæstiréttur Kalíforníu komst að því að dauðarefsing væri andstæð stjórnarskránni. Hann sótti alls 12 sinnum um reynslulausn en ætíð neitað, síðast árið 2012.
Mest lesið Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Hamas liðar vilja ekki afvopnast Erlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Erlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Innlent Fleiri fréttir Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Sjá meira