Dóra Sif Tynes, fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA, var gestur Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í morgun. Þar ræddi hún framhald viðskiptasambands Íslendinga og Breta þegar Brexit gengur að fullu í gegn. Hún segir að ef Bretar ganga eftir allt saman alfarið úr sambandinu sé enginn formlegur samningur milli ríkjanna til staðar.
„Við höfum ekki neina aðra samninga við Bretland heldur en EES-samninginn. Þannig að augljóslega þyrftum við að semja um fríverslun.“
Getur ekki samið fyrir Íslands hönd
Dóra Sif segir þó ekki útilokað að Bretar nái samkomulagi við ESB um viðskiptasamband við sambandið í einhverri mynd. Þetta þýðir þó ekki að Íslendingar verði hluti af slíku samkomulagi. „Nú erum við náttúrulega ekki í Evrópusambandinu þannig að þeir geta náttúrulega ekki samið fyrir Íslands hönd. En hins vegar hefur nú reyndin verið sú, til dæmis með stærri fríverslunarsamninga, að oftar en ekki hefur Evrópusambandið gert fríverslunarsamning við tiltekið ríki og síðan kemur EFTA í kjölfarið.“
Lítið svigrúm
Hún segir því að Íslendingum væri í raun frjálst að semja sjálfir við Breta upp á nýtt. Aftur á móti sé ekki víst að svigrúmið til þess væri ýkja mikið. „Í þessu tilviki finnst mér líklegast, komist Evrópusambandið og Bretland að einhverri heildarniðurstöðu um aðgang þeirra að innri markaðnum og svo framvegis, þá verði afskaplega lítið svigrúm fyrir EFTA-ríkin, sem eru þátttakendur á innri markaðnum, að semja einhvern veginn allt öðru vísi,“ sagði Dóra Sif Tynes á Sprengisandi í morgun.
Hlusta má á viðtali við Dóru Sif í spilaranum að neðan.