Ætlaði ekki að reyna að drepa leikmenn Dortmund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2018 11:30 Sergei W. Vísir/AFP
Réttarhöld standa nú yfir manni sem er ákærður fyrir að sprengja upp rútu Borussia Dortmund þegar hún var á leiðinni í leik í Meistaradeildinni á síðasta ári.BBC segir að maðurinn sér Þjóðverji af rússneskum ættum, að hann sé 28 ára og heiti Sergei W. Fullt nafn hans liggur þó ekki fyrir. Marc Bartra, varnarmaður Borussia Dortmund, var sá eini af leikmönnum Dortmund liðsins sem meiddist í árásinni en hann úlnliðsbrotnaði. Lögreglumaður missti líka heyrnina. Sergei W hefur viðurkennt að hafa komið sprengjunum fyrir á leið Borussia Dortmund á völlinn en hann segir þó að markmiðið hans hafi ekki verið að drepa neinn. „Ég sé innilega eftir þessu,“ sagði Sergei W fyrir réttinum. Hann var kærður fyrir 28 tilraunir til manndráps. Hann neitar þeirri sök. Liðsmenn Borussia Dortmund voru á leiðinni í Meistaradeildarleik við Mónakó og leikurinn fór ekki fram fyrr en daginn eftir. Stuðningsmenn Borussia Dortmund fengu mikið hrós fyrir hvernig þeir tóku á móti frönskum strandaglópum sem voru mættir á leikinn. Stuðningsmenn Mónakó fengu því gistingu og gátu því mætt á leikinn daginn eftir.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Solskjær: Lét mig vinna launalaust Fótbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Slóveníu: Viktor! Gísli! Hallgrímsson! Handbolti Ísland byrjar á Egyptum og spilar tvo kvöldleiki Handbolti Samfélagsmiðlar yfir sigrinum á Slóveníu: „Viktor Gísli bestur í heimi eða?“ Handbolti Skýrsla Vals: Viktor og virkisveggurinn Handbolti „Hann veit á hvaða takka á að ýta til að fá mig í gang“ Handbolti Allt jafnt hjá Svíum og Spánverjum Handbolti „Þá er helvíti leiðinlegt að spila á móti okkur“ Handbolti Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Handbolti Dagskráin í dag: Hákon Arnar á Anfield Sport Fleiri fréttir Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Þróttur fær aðra úr Árbænum Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Mbappé með slæmar fréttir fyrir mótherja Real Madrid Arnar fer með Ísland til Skotlands Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Sjá meira