Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Malaga Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 19. janúar 2018 06:00 Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar í Malaga. Wiki Commons
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Malaga á Spáni grunaður um alvarlegt ofbeldisbrot gegn þrítugri eiginkonu sinni sem einnig er íslensk. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er maðurinn grunaður um að eiga þátt í því að eiginkona hans féll fram af svölum á heimili þeirra á Spáni en hún liggur nú alvarlega slösuð á sjúkrahúsi ytra og óvíst er með bata. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi í utanríkisráðuneytinu, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að íslenskur karlmaður hafi verið hnepptur í gæsluvarðhald í Malaga á Spáni vegna gruns um alvarlegt ofbeldisbrot. Urður vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Atvikið átti sér stað fyrr í vikunni en hjónin eru nýlega flutt til Spánar og eru búsett þar ásamt ungri dóttur sinni. Ekki hafa fengist upplýsingar um málið hjá íslenskum lögregluyfirvöldum en málið mun vera í höndum spænsku lögreglunnar í Malaga. Komi til ákæru fer málið til meðferðar hjá spænskum dómstólum.
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira