Landsliðskonur flúðu Ítalíu eftir brot á samningum | Látnar búa í óíbúðarhæfu húsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2018 08:30 Berglind Björg Þorvaldsdóttir. Vísir/Anton
Íslensku landsliðskonurnar Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir hafa spilað sinn síðasta leik fyrir ítalska félagið Verona. Morgunblaðið segir frá því í morgun að báðar séu þær staddar á Íslandi og voru þannig ekki með Verona liðinu í fyrsta leiknum eftir jólafrí. Stelpurnar vildu ekki tjá sig um málið við Sindra Sverrisson á Morgunblaðinu en vísuðu á Leikmannasamtök Íslands. Þar ræddi Kristinn Björgúlfsson, framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands mál þeirra Berglindar og Örnu. „Það liggur alveg ljóst fyrir að það er búið að brjóta samninga við þær í bak og fyrir, og það er bara verið að reyna finna lausn á því hvernig hægt er að leysa þetta,“ sagði Kristinn við Morgunblaðið og bætti svo við: „Brotin felast meðal annars í því að launagreiðslur hafa borist seint, húsnæði var útvegað seint auk þess sem það var engan veginn íbúarhæft, og fleira. Vandamálið er kannski að það sem okkur finnst í lagi finnst þeim ekki í lagi,“ sagði Kristinn. Báðar mun þær Berglind og Arna Sif væntanlega spila í Pepsi deild kvenna næsta sumar. Berglind ætlaði alltaf að spila með Breiðabliki en valið hjá Örnu Sif stendur á milli þess að leika áfram með Val eða ganga í raðir Þórs/KA, hennar uppeldisfélags.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher Formúla 1 Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Í beinni: Víkingur - FH | Bæði lið bráðvantar sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Í beinni: Víkingur - FH | Bæði lið bráðvantar sigur Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Sjá meira