Glamour

Alla leið til Íslands fyrir sjampó

Ritstjórn skrifar
Skjáskot: Sóley Organics
Það er alltaf ánægjuefni þegar að íslensk vörumerki fá athygli út fyrir landsteinana, og nú höfum við rekist á skemmtilega grein frá Vogue.

Íslensku snyrtivörurnar Sóley Organics fá aldeilis góða dóma hjá blaðamanni ameríska Vogue, sem segist ekki munu hika við það að fara alla leið til Íslands fyrir sjampóið og næringuna.

Blaðamaðurinn, sem heitir Erika Owen, segist hafa átt dásamlega Íslandsferð. Hún hafi kynnst snyrtivörunum frá Sóley á Kex Hostel, og hafi síðan keypt sér til að taka með heim. Erika segir að í hvert skipti sem hún notar vörurnar berist hugurinn aftur til Íslands.

Vörur Sóley Organics eru náttúrulegar snyrtivörur, en merkið var stofnað árið 2007. Leikkonan Sóley Elíasdóttir er stofnandi merkisins, en fyrirmyndin er amma Sóleyjar, sem notaði plöntur og grös til húðlækninga. 

Grein Vogue má lesa hér

Sóley Organics


×