Aðgerðasinnar segja að stjórnvöld geri árásir bæði úr lofti sem og á landi á meðan að Rússar segja að svokölluðum „mannúðlegum gangi“ , sem borgarar geta nýtt til þess að flýja, hafi verið hlíft. Á meðan á árásunum stendur komast engin hjálpargögn frá Sameinuðu þjóðunum til skila né er heldur hægt að fara með illa sært fólk í burtu.
Í frétt BBC um málið kemur fram að í kringum 393.000 manns eru fastir á svæðinu í kringum Damaskus sem hefur verið á valdi sýrlenskra yfirvalda síðan 2013.
Segir Rússland eina aðilann sem getur haft áhrif á Assad
Læknar segja að meira en 500 einstaklingar hafi látið lífið síðan að herinn hóf árásir sínar fyrir níu dögum síðan.Frakkland hefur hvatt Rússland til þess að nýta sér áhrif sín og ítök við forseta Sýrlands, Bashar al-Assad til þess að tryggja að 30 daga vopnahléinu verði framfylgt.
„Rússland er eini aðilinn sem getur fengið stjórnina til þess að framfylgja vopnahléinu,“ sagði Jean-Yves Le Drian við kollega sinn Sergei Lavrov í Moskvu.
Margir slasaðir sem ekki komast undir læknishendur
Samræmingarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum segir að hún hafi fengið fregnir þess efnis að árásirnar hafi haldið áfram eftir að Rússland kallaði eftir vopnahléi klukkan 7 á þriðjudag.„Ljóst er að ástandið á jörðu niðri er þannig að ekki er hægt að koma gögnum inn né heldur að flytja særða út,“ sagði Jens Laerke við fréttamenn í Genf.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segir að hún viti um meira en 1.000 illa særða og veika einstaklinga sem nauðsynlega þarf að flytja í burtu frá svæðinu og koma undir læknishendur.