Innlent

Mál þunguðu konunnar hefur verið tilkynnt til lögreglu

Sylvía Hall skrifar
Konan leitaði til bráðamóttöku eftir nálastungumeðferð.
Konan leitaði til bráðamóttöku eftir nálastungumeðferð. vísir/pjetur
Landspítalinn tilkynnti mál þungaðrar konu til lögreglu, en konan var í lífshættu eftir nálastungumeðferð. Málið er litið alvarlegum augum hjá embætti Landlæknis, en ekkert eftirlit er með nálastungumeðferðum hér á landi. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Eins og kom fram á Vísi í vikunni gekkst konan undir aðgerð vegna loftbrjósts eftir að hafa leitað til bráðamóttöku í kjölfar áverka eftir nálastungur.

„Embættið lítur það auðvitað alltaf mjög alvarlegum augum ef fólk er í lífshættu af áverkum eða líkamstjóni, sérstaklega ef það er vegna vankunnáttu eða gáleysis einhverra aðila sem taka að sér að meðhöndla það við heilsukvillum,“ segir Björn Geir Leifsson, yfirlæknir eftirlits og frávika hjá embætti Landlæknis í samtali við RÚV.

Loftbrjóst á sér stað þegar gat kemur á lungað og það fellur saman og hindrar öndun samkvæmt upplýsingum á vef landlæknis. Tilfelli konunnar var svo alvarlegt að hún var talin í bráðri lífshættu, en hún hafði farið í meðferðina í von um að minnka meðgönguógleði.

Gagnsemi nálastungumeðferða umdeild

Björn Geir segir að eftirlit þurfi að vera með þeim sem stundi nálastungur, en þær séu ekki hættulausar. Á vef landlæknis kemur fram að full ástæða sé til að vara við slíkum meðferðum á viðkvæmum einstaklingum, til dæmis þunguðum konum. Í tilkynningu frá embætti landlæknis um þetta mál kemur fram að gagnsemi slíkra meðferða sé umdeild.



„Að mati landlæknis er fullt tilefni til að vara við því að leitað sé þjónustu eða meðferðar hjá ófaglærðum áhugamönnum eða öðrum sem vafi getur leikið á um að kunni vel til verka. Á þetta sérstaklega við þegar um er að ræða viðkvæma einstaklinga, þungaðar konur, börn og sjúklinga með alvarleg eða langvinn veikindi svo sem krabbamein.

Gagnsemi nálastungumeðferða er umdeild. Þótt fylgikvillar séu fremur sjaldgæfir þá geta afleiðingar þeirra verið mjög alvarlegar og í sumum tilvikum lífshættulegar. Auk loftbrjósts og ástungu í önnur viðkvæm líffæri, hafa komið upp alvarlegar sýkingar í kjölfar slíkra meðferða. Sem dæmi má nefna að nýlega lést maður í Noregi af sýkingu eftir nálastungur á hendi. Þá vöruðu dönsk yfirvöld á síðasta ári við áhættu af nálastungum eftir fjögur alvarleg tilfelli það sama ár, þar af var eitt dauðsfall,“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×