Þetta er í fyrsta sinn sem Kim Jong Un, leiðtogi einræðisríkisins einmana fer út fyrir landsteinana frá því að hann tók við embætti árið 2011 og þykir vera til marks um þýðu í samskiptum ríkisins við nágranna sína.
Xi-Jingping hafði eftir leiðtoganum að hann telji horfurnar á Kóreuskaga mun betri en áður og að friðarumleitanir geti skilað árangri að þessu sinni. Þá sé hann tilbúinn til viðræðna um kjarnorkuafvopnun Kóreuskaga en kjarnorkuáætlun Norður Kóreu hefur verið ein helsta ástæða ástæða þess að önnur ríki hafa beitt Norður Kóreu þvingunaraðgerðum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði þá á Twitter í dag að hann hefði fengið skilaboð frá Kínaforseta eftir fundinn og að hann fagni áfanganum. Hann hlakki einnig til fundarins með Kim en þangað til að árangur næst í samningaviðræðum þurfi þvingunarúrræði, því miður, að vera enn til staðar.

Hingað til hefur Kim Jong-Un treyst á einangrun ríkisins og kjarnorkuvopnaáætlunina til að halda andstæðingum í hæfilegri fjarlægð og hefur reynt að forðast mistök annarra sem haf verið í álíka stöðu. Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Írak var til að mynda steypt af stóli vegna þess að Bandaríkin töldu hann halda gereyðingarvopn. Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbíu, samþykkti þá að hætta við kjarnorkuáætlun sína en var fyrir vikið steypt af stóli af uppreisnarmönnum studdum af Bandaríkjunum. Kim fjölskyldan hefur fram að þessu forðast sömu mistök og talið að fjandsamleg utanríkisstefna og ógnandi tilburðir tryggi þeim áframhaldandi tangarhald á ríki sínu. Því vakti það furðu og athygli að leiðtoginn skyldi mýkjast svo gagnvart óvinveittum ríkjum.