Íþróttadeild spáir Fjölni áttunda sæti deildarinnar sem er betri árangur en í fyrra þegar að liðið hafnaði í tíunda sæti og var þremur stigum frá falli. Mikill uppgangur var hjá Fjölni og náði liðið sínum besta árangri árið 2016 en svo missti það marga leikmenn og allt fór í hundana. Breytingar hafa orðið á liðinu og nýr þjálfari er kominn í brúnna. Nýtt upphaf er í Grafarvoginum en það mun taka sinn tíma að koma liðinu aftur í efri hlutann.
Lið sem hafa rétt sloppið við fall í Pepsi-deildinni og hafnað í tíunda sæti hafa vanalega ekki átt góðu gengi að fagna árið eftir. Ólsarar féllu á síðustu leiktíð eftir að verma tíunda sætið og vanalega eru lið svona frá 9.-12. sæti. Þau falla þó reyndar ekki alltaf. Síðasta lið sem algjörlega sneri við sínu gengi eftir að enda í tíund asæti var ÍBV sem fór út botnbaráttu í toppbaráttu á milli sumra.
Þjálfari Fjölnis er Ólafur Páll Snorrason sem þekkir vel til í Grafarvoginum eftir að spila þar nokkrum sinnum. Síðast var Ólafur spilandi aðstoðarþjálfari þegar að liðinu gekk hvað best en þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari. Hann er ungur og óreyndur á hliðarlínunni og mun þurfa að takast á við allskonar mótbyr á leiktíðinni og verður fróðlegt að sjá hvernig hann mætir til leiks.
Svona munum við eftir Fjölni
Rjóminn á þessari slæmu köku var eiginlega þegar að Fjölnisliðið ætlaði að setja ný viðmið í að verjast aukaspyrnum en fékk samt á sig mark í markmannshornið á móti KA. Mjög fyndið fyrir alla aðra en Fjölnismenn.
Liðið og leikmenn

Þrír sem Fjölnir treystir á:
Bergsveinn Ólafsson: Ef Fjölnismenn voru ekki spenntir fyrir sumrinu áður þá kom spennan þegar að fyrirliðinn sem fór í Hafnarfjörðinn til að verða Íslandsmeistari sneri aftur. Það góða fyrir stuðningsmenn þeirra gulu er að Bergsveinn kemur ekki heim sem neinn kóngur heldur hefur hann ýmislegt að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum eftir dapurt síðasta tímabil með FH. Góður miðvörður á sínum degi og mikill leiðtogi.
Almarr Ormarsson: Ein bestu kaup vetrarins áttu sér stað þegar að Fjölnir fékk Almarr Ormarsson sem er einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar. Mikill leiðtogi á velli sem gefur sig alltaf 100 prósent í alla leiki, er flottur fótboltamaður sem dúkkar upp með mörk og berst allan tímann. Flottur leikmaður til að hafa í kringum vel spilandi unga Fjölnismenn.
Þórir Guðjónsson: Rauða þruman í framlínunni er kannski engin markavél en hann hefur skorað sjö til átta mörk á hverri leiktíð undanfarin þrjú ár fyrir utan að taka mikið til sín og búa til svæði fyrir aðra framherja liðsins. Ef Fjölnismenn ætla sér eitthvað fyrir alvöru verður hann að halda í sína markaskorun og jafnvel bæta í.
Markaðurinn

Stóru kaupin sem munu líklega skila Fjölni hvað mestu voru á Almarri sem er aðeins öðruvísi karakter en Fjölnismenn eiga að þekkja. Hann ætti að geta skapað flotta dínamík í Fjölnisliðinu sem þjálfarinn hlýtur að vera ánægður með.
Þrátt fyrir að nöfnin séu mörg sem eru á farnir-listanum skipta þau sama og engu máli. Þessi útlendingahersveit var litlu sem engu að skila á síðustu leiktíð og tók svolítið hjartað úr liðinu. Þeir kannski sakna mest Marcusar Solbergs sem var mikill vinnuhestur.
Markaðseinkunn: B
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Þeir eru með marga spennandi unga leikmenn og fengu heim Gumma Kalla og Begga sem er mikill styrkur. Ég veit að þjálfarateymið er að vinna með það að spila á styrkleikum liðsins. Þetta eru ungir og flinkir strákar sem eru vanir því að spila fótbolta sem er annað en Fjölnir hefur verið að gera síðustu þar. Það hefur verið vanara því að liggja til baka og sækja hratt.“
„Ég veit að það verður lög áhersla á það að halda bolta og vinna boltann framarlega. Þeir hafa litið gríðarlega vel út í vetur og unnið lið eins og Val og Stjörnuna. Þeir eru beittir fram á við en þetta er ungt lið þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig það fer af stað. Svo er nýr þjálfari sem verður áhugavert að sjá hvernig hann ræður við mótlætið þegar að því kemur,“ segir Indriði Sigurðsson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru ... hvort þessir ungu og efnilegu leikmenn eins og Birnir Snær Ingason og Ægir Jarl Jónasson ætli loksins að taka skrefið í það að verða góðir og þá helst stöðugir úrvalsdeildarleikmenn. Þetta er orðin spurning fyrir hverja einustu leiktíð og er kominn tími á að þeir blómstri. Halda Bergsveinn og Guðmundur Karl haus eftir að koma aftur heim úr FH þar sem markmiðin eru allt öðruvísi og hvernig gengur að spila þetta þriggja manna varnarkerfi.
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Ég horfi ekki einu sinni á fallbaráttu, frekar annað drauma tímabil eins og fyrir tveimur árum. Ég sé engan mun á liðinu þá og núna þegar og ef Birnir og Ægir komast í gang. Almarr á eftir að færa þessu liði helling og við erum með geggjaðan markvörð og frábært miðvarðaþríeyki í Begga, Hans Viktori og Torfa Tímóteus. Hver ætlar að skora á þessa gaura?
Siggi: Hættir þú bara að horfa á Fjölni og varst orðinn saddur eftir Reykjavíkurmeistaratitilinn? Strákarnir tóku heldur betur dýfu í Lengjubikarnum þar sem þeir töpuðu meðal annars fyrir Ólafsvík og í síðustu tveimur æfingaleikjum hefur liðið tapað fyrir Fram og fengið rassskell á móti Stjörnunni. Og þá meina ég rassskell.
Ef Beggi hefði komið strax heim eftir fyrstu leiktíðina í FH væri ég töluvert spenntari. Hann fékk mikla gagnrýni í fyrra og ég er ekkert viss um hvar hausinn á honum er. Hann ber rosalega ábyrgð með þessa tvo ungu menn með sér. Svo hefur Þórir verið svolítið meiddur. Ef hann er ekki inn á veit ég ekki hver ætlar að skora. Svo get ég ekki beðið lengur eftir því að Birnir og Ægir eigi að verða þessir stöðugu leikmenn sem talað er um. Það hefur enginn þolinmæði í að bíða eftir því.