Skoðun

Stjórnviskulegur búhnykkur – virkjum tengslanetið

Anna Þóra Ísfold skrifar
Mér er hugleikið þakklæti til kvenna, tengslanets kvenna á Íslandi. Hvernig við virkjum það samanborið við tengslanet karla og finnum leiðir til að byggja brýr. Nú þegar 100 ára fullveldi Íslands er fagnað er áhugavert að minnast þess að árið 1915 var kosningaréttur og kjörgengi kvenna til Alþingis varðað með takmörkunum við 40 ára aldur. Kvenfélög höfðu rík áhrif á samfélagið þá sem nú, kvenréttindafrömuðir brýndu raust sína með beittum greinaskrifum um meðal annars launamun kynjanna og breytingar á skilyrðum kosningaréttar. Lesa má á vef Kvennasögusafns Íslands að Bríet Bjarnhéðinsdóttir kvenréttindaskörungur sagði skilyrði kosningaréttarins „hinn nafnfræga íslenska stjórnviskulega búhnykk“.

Árið 1920 var kosningaréttur færður til jafns við rétt karla. Í dag má finna fjölda hornsteina jafnréttis í samfélagi okkar sem karlar og konur eiga heiðurinn af og hafa fært okkur meðal fremstu þjóða heims á sviði jafnréttis. Enn eru þó tölur úr atvinnulífinu þannig að kalla má þær búhnykk, til umhugsunar fyrir stjórnvöld sem veita umgjörð í gegnum velferðarkerfi og atvinnulíf og stjórnendaval fyrirtækja, þar sem hlutföll kynja endurspegla ekki samfélagið, menntunarstig og fjölbreytt vinnuafl.

Velti ég því stundum fyrir mér ef við konur í atvinnulífinu myndum virkja okkur til jafns við karla á þessu sviði, þá færði það okkur nær jafnari hlutföllum í leiðtoga- og stjórnunarstöðum. Orð Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, eiga hér vel við um að „það kemur að því að konur bjarga heiminum – með hjálp karla.“

Þakklæti til kvenna er mér ofarlega í huga þessi misserin. Hef reynt á eigin skinni hvað tengslanet er dýrmætt meðal annars í kjölfar skipbrots í einkalífi á haustmánuðum, tengslanet í nærumhverfinu bar mig þegar ég gat ekki gengið; mæður, dætur, tengdadóttir, vinkonur og nágrannakonur. Á vetrarmánuðum tók við falleg fjallshlíðin í nýju krefjandi umhverfi þar sem samtímis breytingum í einkalífi voru áskoranir tengdar atvinnuöryggi og innkomu. Með því að taka ákvörðun um að vera berskjölduð og deila áskorunum mínum með samferðakonum í atvinnulífinu fann ég hvernig stuðningur þeirra gaf mér innblástur og hugrekki til að láta til mín taka þrátt fyrir mótbyr. Á því ferðalagi stóðu konur með þor og gildismat til jafns við Bríeti Bjarnhéðinsdóttur með mér í gegnum hvassan vindinn og skýldu mér.

Ég kalla eftir þori okkar allra til að standa upp fyrir samferðakonur okkar, bera á borð visku þeirra og framkvæmdagleði. Látum sögur kvenna sem hafa rutt leiðina veita okkur hvatningu til að breyta samfélaginu þannig að börn okkar lifi við breyttan veruleika í sinni framtíð.

Höfundur er stjórnarkona í FKA og ráðgjafi í stafrænni miðlun og markaðsmálum 




Skoðun

Sjá meira


×