Skoðun

Byggjum í Hafnarfirði

Ágúst Bjarni Garðarsson og skrifa

Húsnæðismál eru ein af grunnstoðum velferðarkerfisins. Öll þurfum við þak yfir höfuðið - við þurfum húsnæðisöryggi óháð efnahag og búsetu. Það er ein lykilforsenda heilbrigðs samfélags. Nægt framboð af húsnæði skiptir máli, en slíkt hefur ekki verið raunin. Árið 2016 voru 4 nýir íbúar um hverja íbúð en árið 2017 var talan komin í 6 nýja íbúa á hverja íbúð. Þetta sýnir okkur að vandinn hefur frekar verið að aukast heldur en hitt.



Hlutverk sveitarfélaga

Eftirspurn eftir húsnæði hefur verið meiri en framboðið og slíkt skapar vandamál og hækkar verð. Uppbyggingin hefur samt verið meiri á höfuðborgarsvæðinu en áður og hafa öll sveitarfélögin tekið þátt í þeirri uppbyggingu að Hafnarfirði undanskildum. Fjöldi íbúða í byggingu í Reykjavík er 1726, 1048 í Kópavogi, 594 í Garðabæ, 550 í Mosfellsbæ en aðeins 150 í Hafnarfirði. Hlutfallslega er aukningin því minnst í Hafnarfirði og Reykjavík. Núverandi meirihluti hefur ekki sinnt þessum málum. Staðreyndirnar tala sínu máli.



Á fundi Samtaka iðnaðarins nýverið kom fram að byggja þurfi 45 þúsund íbúðir á næstu 22 árum. Við, hér í Hafnarfirði, getum ekki leyft okkur að sitja hjá líkt og við höfum gert undanfarin ár. Við höfum skyldu að gegna gagnvart samfélaginu okkar. Bent hefur verið á þá staðreynd að nú þegar tekið hefur að hægja á hagvextinum sé góður tími til að hefjast handa og byggja upp innviði eins og húsnæði. Vissulega þarf að gera það skynsamlega og fylgjast með að ekki sé byggt of mikið. Þetta er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga og eru húsnæðisáætlanir gott verkfæri þegar kemur að slíku eftirliti.



Hafnarfjörður hefur ekki enn sett sér húsnæðisáætlun. Slík áætlun þarf að vera vel unnin í víðtæki samstarfi og samráði við hagsmunaaðila eigi hún að nýtast sem það mikilvæga verkfæri sem sveitarfélög þurfa, og eiga að hafa, til að fá raunverulega mynd af stöðu mála. Hún gefur okkur einnig tækifæri til að greina framboð og eftirspurn eftir mismunandi húsnæðisformum og setja okkur áætlun um það hvernig skuli bregðast við, í nútíð og framtíð.



Við þurfum lausnir – og erum með þær

Við í Framsókn og óháðum munum tryggja nægt framboð lóða, skipuleggja ný svæði og ráðast í endurskoðun á gjöldum sveitarfélagsins með það að markmiði að þau lækki. Þá erum við sérstaklega að tala um lóðargjöldin, en sú staðreynd blasir við okkur að lóðargjöld eru 20% af heildarbyggingakostnaði. Einnig þurfum við meiri sveigjanleika í skipulagsskilmálum. Jafn strangir skilmálar og hafa viðgengist hér í Hafnarfirði hafa það í för með sér að framkvæmdaaðilar treysta sér ekki til að byggja ódýrt húsnæði.



Við munum ráðast í þessar aðgerðir svo að mögulegt verði að byggja íbúðir fyrir alla hópa samfélagsins og um leið tryggja að Hafnarfjörður verði samfélag þar sem allir fái notið sín. Sameinumst um þetta verkefni – við erum sterkari saman.



Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×