Vísbendingar um vítahring bráðnunar á Suðurskautslandinu Kjartan Kjartansson skrifar 25. apríl 2018 16:15 Vatnið undir hafísnum við Suðurskautslandið verður saltari og þéttari en sjórinn fyrir neðan og sekkur því. Ferskvatn frá bráðnandi jöklum raskar þessari hringrás og gerir hlýrra vatni kleift að komast að rótum skriðjökla. NASA
Ferskt bráðnunarvatn frá íshellunni á Suðurskautslandinu virðist nú raska hringrás í hafinu í kringum viðkvæmustu jöklana þar og veita hlýjum sjó greiðari aðgang að þeim. Þetta gæti valdið hringrás þar sem bráðnun getur af sér enn meiri bráðnun og hækkun yfirborðs sjávar. Beinar mælingar við strendur vesturhluta Suðurskautslandsins og Totten-jökulinn á austurhluta þess sýna að að ferskt bráðnunarvatnið truflar náttúrulegt ferli þar sem kaldur og saltur sjór við yfirborðið sekkur. Þetta þýðir að hlýrri sjór á meira dýpi getur streymt að landgrunninum og brætt skriðjökla neðan frá. Við bráðunina bætist enn meira ferskvatn út í sjóinn sem stíflar þessa hringrás enn frekar og veldur þannig meiri bráðnun.Eykur á áhrif hlýnunar Spálíkön hafa bent til þess að niðurbrot hringrásarinnar gæti átt sér stað með aukinni bráðnun íssins á Suðurskautinu með hnattrænni hlýnun af völdum manna. Rannsóknin nú er fyrsta beina mælingin sem bendir til þess að ferlið sé þegar farið af stað, að sögn Washington Post. Sá fyrirvari er á rannsókninni að ekki er hægt að ráða af niðurstöðum hennar hvenær ferskvatnið byrjaði að trufla hringrásina og því er ekki hægt að slá því föstu að hlýnun loftslags af völdum manna hafi orsakað truflunina. Óháð því mun röskunin auka á áhrif hnattrænnar hlýnunar og hækkun yfirborðs sjávar sem fylgir bráðnun landíssins. Alessandro Silvano, vísindamaður við Tasmaníuháskóla og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segist aðallega hafa áhyggjur af því að Suðurskautslandið bráðni hraðar á yfirborðinu með áframhaldandi hlýnun loftslags. Sú hafi enn ekki verið raunin þar ólíkt á Grænlandi en það gæti breyst.Neðansjávarbráðnun af völdum hlýs sjávar hefur verið aðalorsök bráðnunar jökla á Suðurskautslandinu. Gríðarlegir ísjakar hafa brotað úr íshellunni þar undanfarin ár.Vísir/AFPHliðstæð atburðarás á norðurhvelinu James Hansen, fyrrverandi loftslagsvísindamaður NASA, sem notaði líkön til að spá fyrir um áhrif bráðnunarvatnsins á hringrásina í hafinu fyrir tveimur árum, segir of snemmt að segja hvaða áhrif keðjuverkun bráðnunar muni hafa á stærri skala. „Ef við höldum okkur við óbreytta losun [gróðurhúsalofttegunda] þannig að hnattræn hlýnun heldur áfram að aukast býst ég við því að innspýting ferskvatns haldi áfram að aukast (aðallega með hraðara uppbroti íshellunnar og neðansjávarbráðnun) og að hafísþekjan muni stækka. Þessi tilraun mun halda áfram næstu árin og áratugina,“ segir Hansen við bandaríska blaðið. Fram að þessu hafa vísindamenn haft meiri áhyggjur af því að bráðnun íss á Grænlandi gæti raskað hafstraumum í norðurhöfum. Ferskvatn frá bráðnandi jöklum gæti truflað hringrás í sjónum þar. Nýjar rannsóknir hafa þannig bent til þess að hringrás í hafinu sem flytur hlýjan sjó frá miðbaugi norður í höf og kaldan sjó þaðan suður á bóginn hafi ekki verið hægari í annað þúsund ára. Slík röskun á hafstraumunum gæti haft veruleg áhrif á veðurfar í kringum Ísland og í vestanverðri Evrópu.
Loftslagsmál Suðurskautslandið Vísindi Tengdar fréttir Færiband hlýrra hafstrauma í Atlantshafi ekki verið hægara í þúsund ár Veikist hringrás sjávar enn frekar eða stöðvist hefði það mikil staðbundin áhrif á veðurfar og dýralíf. 12. apríl 2018 13:00 Mikil aukning í úrkomu á Suðurskautslandinu Stóraukin snjókoma hefur hins vegar ekki komist nálægt því að jafna út ístapið af völdum bráðnunar og hop jökla með hlýnandi sjó og veðurfari. 9. apríl 2018 14:15 Viðkvæmasti hluti suðurskautsíssins heldur áfram að rýrna hraðar Alls runnu rúmlega 1.900 milljarðar tonna af ís út hafið af Suðurskautslandinu á hverju ári árið 2015. 22. febrúar 2018 23:00 Sjávarstaða næstu alda gæti ráðist á næstu fimm árum Tafir á loftslagsaðgerðum núna hafa áhrif langt inn í framtíðina. Yfirborð sjávar gæti hækkað um 70-120 sentímetra fyrir árið 2300 jafnvel þó að markmið Parísarsamkomulagsins náist. 20. febrúar 2018 22:54 Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Fleiri fréttir Afar mjótt á munum hjá forsetaframbjóðendum í Póllandi Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Leita „Skrattans í Ozarkfjöllum“ í hellum og skógum Fleiri ákærur væntanlegar í Liverpool Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Enn hætta á flóðum þar sem heilt þorp hvarf í aurskriðu Sagði Diddy hafa nauðgað sér Russell Brand lýsir yfir sakleysi sínu Vestræn ríki niðurgreiða stríðsrekstur Rússa í Úkraínu Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Hamas hafna líklegast vopnahléstillögu Trump Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Störfum Musk lokið hjá DOGE Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss Boða nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Segir Ísraelsher hafa myrt leiðtoga Hamas Tuttugu ára fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gegn 299 börnum Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar Vísaði frá máli gegn orkurisa vegna bráðnunar jökla Á góðri leið með loftslagsmarkmið standi ESB-ríki við sitt Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Stöðva vegabréfsáritanir námsmanna og rannsaka umsækjendur nánar Geimfar SpaceX splundraðist eftir 45 mínútna flug Springur Starship í þriðja sinn í röð? „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Sjá meira
Færiband hlýrra hafstrauma í Atlantshafi ekki verið hægara í þúsund ár Veikist hringrás sjávar enn frekar eða stöðvist hefði það mikil staðbundin áhrif á veðurfar og dýralíf. 12. apríl 2018 13:00
Mikil aukning í úrkomu á Suðurskautslandinu Stóraukin snjókoma hefur hins vegar ekki komist nálægt því að jafna út ístapið af völdum bráðnunar og hop jökla með hlýnandi sjó og veðurfari. 9. apríl 2018 14:15
Viðkvæmasti hluti suðurskautsíssins heldur áfram að rýrna hraðar Alls runnu rúmlega 1.900 milljarðar tonna af ís út hafið af Suðurskautslandinu á hverju ári árið 2015. 22. febrúar 2018 23:00
Sjávarstaða næstu alda gæti ráðist á næstu fimm árum Tafir á loftslagsaðgerðum núna hafa áhrif langt inn í framtíðina. Yfirborð sjávar gæti hækkað um 70-120 sentímetra fyrir árið 2300 jafnvel þó að markmið Parísarsamkomulagsins náist. 20. febrúar 2018 22:54