Við sama tækifæri sýndu Kraftvélar almenningi þennan sendibíl ársins 2018, en þar fer fyrsti 100% rafmagnsbíllinn á Íslandi í flokki stærri sendibíla. Iveco Daily var kosinn sendibíll ársins 2015 þegar ný kynslóð hans var kynnt.
Núna þremur árum síðar kynnti Iveco umhverfisvæna útfærslu bílsins sem nefnd hefur verið Blue Power og hlaut hann þá aftur þessi eftirsóttu verðlaun. Verðlaunin veitir dómnefnd bílablaðamanna frá 25 löndum.
Með 200 km raundrægi
Daily Blue Power Electric er með allt að 200 kílómetra raundrægi með tveggja tíma hraðhleðslu og 100% endurvinnanlegum rafhlöðum.Iveco Daily Blue Power má einnig fá í metanútfærslu og því gefst fyrirtækjum nú kostur á umhverfisvænni atvinnubílum sem standast kröfur um minni mengun og því eru engin takmörk á þéttbýlisnotkun þeirra.
Hægt er að fá bílinn með 9 til 19,6 rúmmetra flutningsrými. Einnig má fá bílinn með vörukassa og í pallbílsútfærslu.