Fyrir næst síðustu umferðina munaði sex stigum á Juventus og Napólí í efstu sætunum tveimur. Juventus dugði því stig til þess að koma í veg fyrir að Napólí gæti stolið efsta sætinu og margfaldir meistararnir skiluðu því.
Campioni d'Italia! From #HI5TORY to #LE6END to #MY7H!
#FinoAllaFine#ForzaJuvepic.twitter.com/BOqSiVptjk
— JuventusFC (@juventusfcen) May 13, 2018
Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem sama liðið vinnur Ítalíumeistaratitilinn sjö ár í röð og tók Juventus tvennuna í heimalandinu líka því liðið varð bikarmeistari fyrr í vikunni. Þetta var fjórða árið í röð sem Juventus náði tvennunni á Ítalíu.
ALL TOGETHERRRRRR
SIAMO NOIIIII, SIAMO NOIIIIIII....#MY7Hpic.twitter.com/itCuldH25E
— JuventusFC (@juventusfcen) May 13, 2018