Á Montreal brautinni í Kanada skiptir vélaraflið mjög miklu máli, annað en t.d. í Mónakó þar sem hönnun vængjanna er aðalatriðið.
Kanada kappaksturinn hefur verið mjög skemmtilegur síðastliðin ár og býður brautin upp á mikinn framúrakstur. Eins og sannaðist árið 2011 þegar að Jenson Button sigraði, þrátt fyrir að þurfa að fara fimm sinnum inn á þjónustusvæðið og verið í síðasta sæti í tvígang. Myndband frá þeim kappakstri má sjá neðst í fréttinni.
Kappaksturinn í ár gæti orðið erfiður fyrir Mercedes, þar sem liðið er ekki komið með vélaruppfærslu eins og Ferrari og Red Bull. „Ef aðrir koma með nýjar vélar og uppfærslur verðum við ekki í stöðu til að berjast um sigur,” sagði Lewis Hamilton í vikunni.

Red Bull, rétt eins og Ferrari mætir til leiks með nýjar og uppfærðar vélar í Kanada. Uppfærslur Renault vélanna hjá Red Bull líta þó út fyrir að skila meiri árangri og var Max Verstappen hraðastur á fyrstu æfingum í Montreal.
Verstappen hefur verið mjög hraður það sem af er ári en líka mjög mistækur. „Ef þið haldið áfram að spyrja mig um mistökin hjá mér mun ég skalla ykkur,” sagði Hollendingurinn á blaðamannafundi á fimmtudaginn.
Kappaksturinn byrjar kl. 17:40 á sunnudaginn og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.