Uppfært: Þeir sem eiga miða á leik í Rússlandi og svokallað Fan-ID, þurfa ekki vegabréfsáritun.
Rússneska sendiráðið verður opnað sérstaklega á morgun, laugardag, frá klukkan 9-12. Lokað verður í sendiráðinu á mánudag og þriðjudag vegna þjóðhátíðardaga í Rússlandi og því eru HM-farar, sem hyggjast sækja vegabréfsáritanir fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu, beðnir um að skipuleggja sig eftir því.
Svetlana Seregina, fulltrúi rússnesku ræðismannsskrifstofunnar á Íslandi, segir í samtali við Vísi að nokkur erill hafi verið í sendiráðinu í dag og undanfarna daga vegna vegabréfsumsókna íslenskra fótboltaáhugamanna.
Hún vekur athygli á sérstökum opnunartíma í sendiráðinu á morgun frá 9-12 eins og áður sagði en þeir sem freisti þess að sækja vegabréfsáritanir sínar eftir helgi muni koma að lokuðum dyrum á mánudag og þriðjudag.
HM í knattspyrnu fer fram í Rússlandi 14. júní til 15. júlí. Ísland spilar sinn fyrsta leik á mótinu gegn Argentínu laugardaginn 16. júní og því fer hver að verða síðastur að sækja vegabréfsáritanir til ferðarinnar.
HM-farar grípa í tómt ef þeir sækja vegabréfsáritanir á mánudag og þriðjudag

Tengdar fréttir

Spá því að engin Norðurlandaþjóð komist upp úr riðlinum á HM
Íþróttatölfræðiþjónustan Gracenote hefur tekið það saman, hverjar líkurnar séu að landsliðin á HM í Rússlandi komast áfram í sextán liða úrslitin. Íslenska landsliðið fer ekki áfram upp úr sínum riðli rætist þessi spá.

„Íslendingar verða bara að vonast til að dragast á móti Englandi næst“
Íslenska landsliðið mun sitja eftir í sínum riðli á HM í fótbolta í Rússlandi ef marka má opinbera spá bandaríska blaðsins Sports Illustrated.

Ísland á tvo á listanum yfir tíu elstu útileikmenn HM í Rússlandi
Íslenskir landsliðsmenn komast inn á topplistann yfir þá leikmenn á HM í fótbolta í Rússlandi sem hafa lifað lengst.