Nils Folmer er veiðimönnum vel kunnur enda er hann einn öflugasti stórlaxaveiðimaður sem sést hefur á bökkum landsins.
Á sunnudaginn var hann við veiðar í Vatnsdalsá og verði sér lítið fyrir og landaði fjórum löxum á morgunvaktinni og sá stærsti af þeim var 93 sm. Hann bætti um betur og landaði síðan fimmta laxinum á seinni vaktinni en sá var 95 sm langur og nýgengin lax af Vatnsdalsstofni er líklega um 10 kíló í þessari lengd þbí eins og veiðimenn þekkja er laxinn í ánni bæði þykkur og eins og sagt var um þessa laxa "það er þungt í þeim pundið".
Laxarnir tóku allir flugu sem Nils hannaði sjálfur sem ber nafnið Autumn Hooker. Nafnið gæti gefið það til kynna að þetta sé síðsumarsfluga en svo er greinilega ekki, í það minnsta gæti hún kannski veit vel allt tímabilið.
Landaði fimm stórlöxum sama daginn
