Veiði

Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðviksson skrifar
Mynd: Ingólfur Ásgeirsson
Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum voru birtar í gærkvöldi og nú þegar er ein áin farin að renna fram úr hinum.

Nokkrar nýjar ár á listanum eru bara búnar að vera opnar í einn til tvo daga og holl sem eru við veiðar ennþá að klára svo þær tölur eru kannski ekki beisnar en það er gaman að sjá að það er að aukast krafturinn í veiðinni.  Tímasetningin á stórstraum er svolítið sérstök og gæti þýtt að mest af smálaxinum komi í kringum þann straum en hann er núna í lok júní.  Svipað var uppá teningnum 2015 en það sumar var með eindæmum gott eins og veiðimenn muna eftir.  Sú á sem hefur skilað flestum löxum á land er Þverá/Kjarrá en heildarveiðin þar er komin í 238 laxa á 14 stangir.  Heildarveiðin í henni í fyrra var 2060 laxar svo hún virðist vera komin á gott ról.  Hæsta meðalveiðin á stöng er í Urriðafossi en í gær vantaði heildartöluna en sú sem er á listanum er síðan í síðustu viku.  Við höfum ágætar heimildir fyrir því að veiðin á svæðinu sé að detta í 300 laxa.

Heildarlistinn yfir fimm hæstu árnar er hér fyrir neðan en listann í heild sinni má skoða á www.angling.is 

1. Þverá/Kjarrá       238 laxar

2. Urriðafoss           211 laxar (viku gamlar tölur)

3. Norðurá              175 laxar

4. Blanda                118 laxar

5. Miðfjarðará           95 laxar






×