Erla Dögg var á sexhjóli með dóttur sinni að kanna aðstæður þegar blaðamaður Vísis náði af henni tali. Hún segir að skriðan hafi líklega fallið á milli klukkan fjögur og sex í morgun en dóttir hennar hafi heyrt drunurnar. Skriðan er gríðarstór og hefur algerlega stíflað farveg Hítarár.
„Það fer mjög stór öxl úr Fagraskógarfjalli fyrir neðan eyðibýlið Velli og fyrir neðan Vallargil. Öxlin fer niður fjallið, fer yfir Hítará og það er bara stórt fjall úti í ánni, hún er alveg stífluð. Við gerum okkur ekki alveg grein fyrir hvað þetta eru mörg hundruð metrar sem er bara stórt fjall af skriðu. Þetta eru hundruð metrar, sennilega ekki meira en kílómetri en allavegana fimmhundruð,“ segir hún.
Hún þorir ekki skjóta á hversu há skriðan er en hún hlaupi á einhverjum tuga metra. Lónið teygi sig nú um kílómetra upp ánna og fari stækkandi.
„Hafi skepnur verið þarna hefur engin skepna lifað af,“ segir hún.
Erla Dögg segist muna eftir skriðu sem féll austanmegin í dalnum fyrir um fimmtán árum en sú hafi ekki verið neitt í líkingu við þá sem féll í dag.
„Ég hef bara aldrei séð neitt í líkingu við þetta. Ég hefði bara aldrei trúað þessu,“ segir hún.
Hann segir þó að margir rigningardagar hafi verið í sumar hafi lítið verið um stórrigningar. Ekki sé endilega hægt að tengja skriðuna nú við votviðrið í sumar. Ekki sé hægt að segja til um orsakir skriðunnar að svo stöddu.

