Rafbílaframleiðandinn Tesla tapaði 717 milljónum dollara á öðrum ársfjórðungi þessa árs þegar fyrirtækið kepptist við að ná framleiðslumarkmiðum sínum. Þetta er mesta tap fyrirtækisins á einum ársfjórðungi til þessa.
Elon Musk, stofnandi Tesla, lagði allt kapp á að fyrirtækið næði markmiði sínu um að framleiða 5.000 eintök af Model 3-bifreiðinni í sumar. CNN-fréttastöðin segir að Tesla hafi brennt í gegnum 430 milljónir dollara af lausafé sínu á meðan á átakinu stóð.
Engu að síður eigi Tesla 2,2 milljarða dollara enn í hirslum sínum, umtalsvert meira en fjárfestar og greinendur höfðu óttast. Ýmislegt hefur gengið á hjá Tesla. Fyrirtækið hefur átt erfitt með að ná framleiðslumarkmiðum sínum og fylla pantanir. Þá hefur Musk sjálfur vakið neikvæða athygli með árásum á fjölmiðla og furðulegri uppákomu þar sem hann kallaði breskan kafara barnaníðing í tengslum við björgun ungra knattspyrnudrengja í Taílandi.
Í frétt Reuters-fréttastofunnar kemur fram að eftirspurn eftir bifreiðum Tesla sé enn mikil og fyrirtækið stefni að því að framleiða allt að 55.000 Model 3-bifreiðar á þessum ársfjórðungi. Stefnan sé tekin á að fyrirtækið verði arðbært á þessu ári.
Tesla greinir frá mesta tapi á einum ársfjórðungi

Tengdar fréttir

Tesla nær loks markmiði um aukna framleiðslu
Þrátt fyrir áfangann er óljóst hvort að fyrirtækið geti haldið dampi í framleiðslu á Model 3.

Skrifar barnaníðingsummælin á bræðiskast
Tæknitröllið Elon Musk hefur beðið breska kafarann Vern Unsworth afsökunar.

Elon Musk styrkti samtök íhaldssamra Repúblikana sem afneita loftslagsvísindum
Milljarðamæringurinn Elon Musk var einn þeirra sem gaf hvað mest fé til íhaldssamra samtaka bandarískra repúblikana sem kallast Protect the House. Hann er margsaga um ástæðurnar og samhengið.