Supreme var stofnað árið 1994 í New York. Merkið sérhæfir sig í „götuklæðnaði“ og er þekkt fyrir að hanna flíkur í samstarfi við önnur fatamerki, eins og til dæmis Louis Vuitton, The North Face og Stone Island.
Viðskiptamódel merkisins er einstakt á þann hátt að vörurnar eru seldar í takmörkuðu upplagi og aldrei endurframleiddar. Flestar vörur Supreme er síðan hægt að endurselja á sérstökum síðum á internetinu á uppsprengdu verði.
Supreme gefur út part af flíkunum sem frumsýndar eru í gegnum „lookbookið“ í hverri viku og myndast nánast undantekningarlaust biðraðir fyrir utan verslanir merkisins í hvert sinn, eins og þekkist vel í menningarheimi götutískunnar.

Supreme er gríðarlega vinsælt meðal íslenskra ungmenna og eru meðal annars hópar á Facebook með fleiri en fimm þúsund meðlimi, og sölusíður á Instagram, með fjögur þúsund fylgjendur, sem sérhæfa sig í að endurselja vörur merkisins.
Hér er hægt að skoða umrætt „lookbook“ merkisins fyrir næstkomandi vetur.