Leiknir og Fram með sigurmörk í uppbótartíma Anton Ingi Leifsson skrifar 30. ágúst 2018 19:59 Pedro stýrir Fram-skútunni. vísir/ernir
Leiknir Reykjavík og Fram skoruðu bæði mikilvæg sigurmörk í uppbótartíma í nítjándu umferðar Inkasso-deildar karla. Fram er endanlega sloppið við fall eftir 3-2 sigur á ÍR í Breiðholtinu en góð endurkoma ÍR dugði ekki til. Frederico Saivara kom Fram í 1-0 en Jón Gísli Ström jafnaði úr vítaspyrnu. Á milli markanna, nánar tiltekið á 25. mínútu, fékk Ágúst Freyr Hallsson beint rautt í liði ÍR. Már Ægisson kom Fram yfir í upphafi síðari hálfleiks en Andri Jónasson jafnaði metin á 72. mínútu. Það var svo í uppbótartíma er Jökull Stein Ólafsson tryggði Fram sigur. Fram er því í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig en ÍR er í tíunda sætinu með 17 stig, tveimur stigum meira en Selfoss sem er í fallsæti. Leiknir vann afar mikilvægan sigur á Selfoss í botnslag. Sigurmarkið skoraði Sólon Breki Leifsson í uppbótartíma eftir að Ólafur Hrannar Kristjánsson hafði komið Leikni yfir en Hrvoje Tokic jafnað. Leiknir er því komið í sjöunda sætið með 21 stig og fjarlægist falldrauginn verulega. Selfyssingar eru áfram í bullandi vandræðum, með fimmtán stig í fallsæti. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá Fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Handbolti Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Handbolti Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Handbolti Er Jokic bara að djóka? Körfubolti Antony á leið til Betis Enski boltinn „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Handbolti „Ekki minn stíll að vera í feluleik með Aron“ Handbolti Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús Handbolti Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb Handbolti Fleiri fréttir Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Sjá meira