Lík þeirra Hogg og Suddaen, sem bæði voru 64 ára, fundust á niðurgrafin á lóð sinni í Phrae-héraði. Í frétt BBC er haft eftir lögreglu að Hogg hafi verið skotinn til bana, en Suddaen barin til bana með hamri. Tilkynnt var um hvarf þeirra í síðustu viku.
Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins, sakaðir um að hafa framkvæmt morðið að beiðni bróður Suddaen. Sá er einnig í haldi. Lögreglustjórinn Manas Kerdsukho segir ástæður morðanna vera langvinnar fjölskyldudeilur um fjármuni og eignir.
Mennirnir sem grunaðir eru um verknaðinn voru handteknir eftir að lögregla rakti slóð farartækis sem hafði verið á lóð fórnarlambanna til þeirra. Þeir viðurkenndu síðar að hafa banað þeim Hogg og Suddaen.
Hogg kom upprunalega frá Edinborg í Skotlandi og auðgaðist þegar hann rak fatahreinsunarkeðjuna Clayfull. Hann flutti til Taílands fyrir nokkrum árum þar sem hann hafði látið reisa þriggja hæða glæsihýsi ásamt konu sinni.