Tiger varð þá hlutskarpastur á lokamóti FedEx-mótaraðarinnar, Tour Championship. Hann spilaði stórkostlega alla vikuna og fyrir utan smá stress á lokaholunum steig hann varla feilspor.
Það er ekki svo langt síðan að Tiger komst varla fram úr rúminu fyrir verkjum. Hann er búinn að fara í fjórar bakaðgerðir á þessum fimm árum og var þakklátur er hann gat farið að labba verkjalaus. Þá sá hann varla fyrir sér að hann myndi vinna golfmót á ný.
Á þessum 1.876 dögum hafa farið fram 239 PGA-mót og 119 mismunandi kylfingar unnið þau mót.
Það glöddust allir með Tiger í gær og ótrúleg sjón er hann labbaði upp á 18. flöt. Hann var eins og rokkstjarna. Svona myndir sjást aldrei í golfinu.
Wow. pic.twitter.com/klf7PLfVv9
— PGA TOUR (@PGATOUR) September 23, 2018
"I just can't believe I pulled this off."@TigerWoods gets emotional after winning the @PlayoffFinale. pic.twitter.com/xArdILhpPn
— PGA TOUR (@PGATOUR) September 23, 2018

2013:
4. ágúst: Tiger vinnur Bridgestone-mótið í áttunda sinn.
25. ágúst: Tiger fellur til jarðar af sársauka á Barclays-mótinu. Er að drepast í bakinu og kennir hótelrúminu sínu um. Nær samt einhvern veginn öðru sæti á mótinu.
6. október: Lagast í bakinu og nær öðru sæti á FedEx-mótaröðinni.
2014:
26. janúar: Fyrsta mót ársins á Torrey Pines. Gat ekkert og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
3. mars: Dregur sig úr Honda Classic-mótinu og segist vera slæmur í bakinu. Segir að verkurinn sé svipaður og hálfu ári áður. Þarna var ljóst að eitthvað mikið var að bakinu.
1. apríl: Margir héldu að það væri aprílgabb er Tiger tilkynnir að hann verði ekki með á Masters í fyrsta sinn í 20 ár. Hann fer í sína fyrstu bakaðgerð.
18. maí: Adam Scott tekur toppsætið heimslistans af Tiger en hann hafði verið þar í 683 vikur í heildina.
26. júní: Tiger missti af US Open en mætir á PGA-mót en kemst ekki í gegnum niðurskurðinn. Mánuði síðar kemst hann ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska.
3. ágúst: Byrjar vel á Bridgestone-mótinu en á lokahring fer hann aftur í bakinu. Neyðist til að draga sig úr keppni.
2015:
5. febrúar: Þarf enn og aftur að draga sig úr móti vegna bakmeiðsla. Reynir að gera lítið úr málinu í viðtölum en allir aðrir hafa áhyggjur.
29. mars: Tiger er ekki á topp 100 á heimslistanum í fyrsta skipti á ferlinum.
12. apríl: Spilar vel á Masters en nær ekki topp 15 eftir slakan lokahring. Meiðist aftur í bakinu.
3. maí: Tiger og Lindsey Vonn gefa út að þau séu ekki lengur par.
Sumarið 2015: Lélegasta sumar ferilsins. Kemst ekki í gegnum niðurskurðinn á US Open, The Open og á PGA-meistaramótinu
18. september: Tiger gefur út að hann hafi farið í sína þriðju bakaðgerð. Hún er gerð af sama lækni og hinar tvær.
1. desember: Fyrsti uppgjafartónninn. Tiger segir ómögulegt að spá í hvenær hann spili golf aftur og hann hafi ekkert að hlakka til. Ef hann geti gert eitthvað aftur á golfvellinum þá verði það stór bónus.
3. desember: TIME-tímaritið er með opinskátt viðtal við Tiger um lífið sem vekur mikla athygli.
2016:
24. febrúar: Tiger birtir myndband af sér í golfhermi og segist vera á réttri leið.
Progressing nicely. pic.twitter.com/HKnnluR1OW
— Tiger Woods (@TigerWoods) February 24, 2016
16. maí: Á fjölmiðladegi fyrir mót þá nær Tiger að setja þrjá bolta í vatnið í röð af stuttu færi. Hann er stífur og lítur ekki vel út.
19. júlí: Tiger dregir sig úr PGA-meistaramótinu og tekur því ekki þátt á neinu risamóti í fyrsta sinn síðan 1994. Þá var hann enn áhugamaður.
7. september: Tiger segist ætla að snúa aftur á Safeway Open. Stefnir á þrjú mót fyrir árslok.
10. október: Tiger segist ekki hafa heilsu til að taka þátt á Safeway Open.
2. desember: Nær loksins að spila á Hero-mótinu sínu. Spilar ágætlega og kemur í hús á 73 höggum.
22. desember: Vekur heimsathygli sem Mac Daddy Santa.
Xmas tradition that my kids love. Mac Daddy Santa is back! -TW pic.twitter.com/pCWZNNKPRG
— Tiger Woods (@TigerWoods) December 22, 2016
How many strokes do you think Kai is going to give @tigerwoods and @realDonaldTrump ??? #golfpic.twitter.com/QyW9M6g2sb
— Donald Trump Jr. (@DonaldJTrumpJr) December 23, 2016
3. febrúar: Fyrsta PGA-mótið eftir síðustu bakaðgerð. Kemst ekki í gegnum niðurskurðinn.
31. mars: Gefur út að hann verði ekki með á Masters. Enn og aftur.
20. apríl: Fjórða bakaðgerðin fram undan. Að þessu sinni á að létta þrýsingi á klemmdum taugum sem halda Tiger rúmliggjandi. Ljóst er að hann verður lengi frá eftir þessa aðgerð.
29. maí: Tiger er handtekinn fyrir ölvunarakstur nærri heimili sínu í Flórída. Hann fannst sofandi í bílnum. Síðar kom í ljós að hann var ekki fullur heldur með fimm mismunandi verkjalyf í blóðinu.
31. ágúst: Tiger byrjar loksins að slá og leyfir heiminum að fylgjast með.
Dr. gave me the ok to start pitching pic.twitter.com/tboq1L3Xdn
— Tiger Woods (@TigerWoods) August 31, 2017
Making Progress pic.twitter.com/I3MZhJ74kI
— Tiger Woods (@TigerWoods) October 15, 2017
3. desember: Snýr aftur á golfvöllinn á mótinu sínu, Hero World Challenge. Var um tíma efstur en endar í níunda sæti. Það jákvæðasta sem hefur sést frá Tiger í mörg ár.
2018:
28. janúar: Spilar á sínu fyrsta PGA-móti í heilt ár. Spilar ágætlega og nær 23. sæti.
Mars: Stendur sig vel á tveimur mótum og nær öðru og fimmta sæti. Upphafshöggin eru þó í tómu tjóni.
8. apríl: Miklar væntingar er hann mætir aftur á Masters. Fyrsta risamótið síðan í ágúst 2015. Endar í 32. sæti.
22. júlí: Nálægt því að vinna Opna breska en endar tveimur höggum á eftir efsta manni.
6. september: Klárar hring upp á 62 högg á BMW-meistaramótinu. Endar í sjötta sæti en tryggir sér sæti á Tour Championship-mótinu með frammistöðunni. Er svo valinn í Ryder-liðið í fyrsta skipti í nokkur ár.
12. september: Skilorði Tigers er aflétt áður en því lýkur.
23. september: Stendur uppi sem sigurvegari á Tour Championship. Endurkoman fullkomnuð. Hann er loksins búinn að vinna 80 golfmót.