Þar segir ennfremur að samstarf UNICEF og utanríkisráðuneytisins sé mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands og að íslensk stjórnvöld hafi veitt framlög til UNICEF alþjóðlega um árabil. „Mikilvægur hluti framlaganna frá íslenska ríkisinu til UNICEF á heimsvísu eru svokölluð kjarnaframlög (e. regular resources) sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum. Kjarnaframlög gera UNICEF kleift að skipuleggja sig fram í tímann, bregðast strax við þegar neyðarástand brýst út og vera til staðar þar sem þörfin er mest hverju sinni.“

„Staða barna í Jemen í dag er skelfileg, og nánast hvert einasta barn í landinu þarf á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Til að bregðast við neyð barna í Jemen skiptu kjarnaframlög til UNICEF gríðarlegu máli. Íslenska ríkið hefur stutt dyggilega við neyðaraðgerðir UNICEF í landinu og gert samtökunum kleift að veita milljónum barna aðstoð við gífurlega erfiðar aðstæður.
Á síðasta ári bólusetti UNICEF 4,8 milljónir barna undir 5 ára í Jemen gegn mænusótt, og meira en 640 þúsund börn gegn mislingum, þökk sé slíkum framlögum. Báðir sjúkdómarnir geta verið lífshættulegir börnum. Auk þess studdi Ísland endurbyggingu vatns- og hreinlætiskerfa og hjálpaði til við að meðhöndla 226 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og tryggja 1,3 milljónum barna menntun, svo nokkuð sé nefnt.
Í Jórdaníu var yfir 100 þúsund börnum sem hafa flúið stríðið í Sýrlandi útvegaður hlýr fatnaður, skór og teppi til að verjast vetrarkuldanum í flóttamannabúðum. Leikskólar fyrir börn og nýsköpunarverkefni fyrir ungmenni nutu einnig stuðnings UNICEF og utanríkisráðuneytisins. „Ég kem núna á hverjum degi, og mun halda því áfram. Þetta hjálpar mér að sigrast á áskorunum, ég læri nýja hluti og kennslan hvetur mig áfram,“ segir Reem, 15 ára, sem kemur nú reglulega í nýsköpunarmiðstöð sem UNICEF hefur sett á laggirnar fyrir ungmenni í Jórdaníu.“

„Vanæring er ein helsta dánarorsök barna í Malí. Í Timbúktú, í norðurhluta landsins, þjást 15% barna vegna bráðavannæringar. Áframhaldandi átök og óstöðugleiki í landinu ógna lífi enn fleiri. Framlög frá Íslandi voru því mikilvæg til að bregðast við vannæringu meðal barna í landinu. Þau gerðu UNICEF kleift að meðhöndla yfir 6 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og útvega milljónum barna A-vítamín, bætiefni og aformunarlyf. Allt stuðlar þetta að bættri heilsu barna í landinu.
Samvinna UNICEF og utanríkisráðuneytisins gerði UNICEF einnig kleift að sinna þróunar- og hjálparstarfi á svæðum sem njóta lítillar athygli fjölmiðla og umheimsins almennt og að ná til allra berskjölduðustu barnanna. Í Rúanda vann UNICEF meðal annars að því að bæta gæði mæðra- og ungbarnaverndar til að draga úr tíðni ungbarnadauða. Samstarf við menntamálaráðuneyti landsins lagði áherslu á jöfn tækifæri stúlkna og drengja til menntunar og auk þess aðstoðaði UNICEF ríkisstjórn Rúanda við að tryggja réttindi fatlaðra barna.
Framlög frá Íslandi gegna því ómissandi hlutverki í að vernda og bæta líf barna um allan heim, óháð því hvort þörf þeirra hafi vakið athygli alþjóðasamfélagsins. Þökk sé slíkum stuðningi getur UNICEF barist fyrir réttindum allra barna á heimsvísu og stuðlað að varanlegum umbótum í heiminum,“ segir að lokum í frétt UNICEF.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim.Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.