Englendingar skutu tvisvar í tréverkið í jafntefli 12. október 2018 20:45 Kane skaut í slána í kvöld vísir/getty England og Króatía gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum leik fyrir luktum dyrum í Zagreb. Þetta var annar leikur beggja liða í fjórða riðli A deildar Þjóðadeildarinnar. Eftir úrslitin kvöldsins eru Spánverjar í frábærum málum með sex stig, búnir að vinna bæði lið einu sinni. Það var fátt um færi í leiknum en Englendingar geta þrátt fyrir það verið svekktir með að taka ekki stigin þrjú. Erik Dier skaut í stöngina, Harry Kane í þverslána og Marcus Rashford lét verja frá sér tvö dauðafæri. Króatar áttu einnig sín færi til þess að skora, þeir skutu þrisvar á markrammann, Englendingar tvisvar Englendingar fara til Spánar og spila við heimamenn á mánudaginn. Þjóðadeild UEFA
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn