Sigurmark Ítala í uppbótartíma Smári Jökull Jónsson skrifar 14. október 2018 20:45 Giorgio Chiellini og Arkadiusz Milik eigast við í leiknum í kvöld. Vísir/Getty Ítalir unnu sinn fyrsta leik í Þjóðadeildinni þegar þeir lögðu Pólland á útivelli í kvöld. Ítalía fór þar með uppfyrir Pólland í riðlinum. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferðinni á Ítalíu og höfðu síðan bæði beðið lægri hlut gegn Portúgal. Ítalía var sterkari aðilinn í leiknum í dag en gekk illa að koma boltanum í netið framhjá Wojchiech Szczesny í marki Pólverja. Þeir áttu meðal annars tvö skot í tréverkið í fyrri hálfleik og því var það kærkomið þegar Cristiano Biraghi, leikmaður Fiorentina, skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma. Lokatölur 1-0 og Ítalir því komnir með 4 stig í þriðja riðli A-deildarinnar en þeir mæta Portúal á heimavelli í nóvember. Portúgal á leik til góða og eru því með örlög sín í eigin höndum. Þjóðadeild UEFA