
Kristján segir ferðirnar einstaka upplifun. Svæðið kringum hótelið hafi upp á ótalmargt að bjóða og vinsælt sé að gefa gjafabréf á Hótel Húsafell í jólagjafir.

„Gjafabréf í mat og gistingu hjá okkur eru tilvalin jólagjöf. Við erum með gjafabréf sem gilda allt árið en einnig gjafabréf sem gilda yfir veturinn. Innifalið í gistingu er morgunverður og aðgangur að sundlauginni á opnunartíma. Við laugina eru heitir pottar og tvær heitar laugar og hægt er að fá lánaðan búnað til að fljóta í lauginni og upplifa þannig algera slökun,“ segir Kristján.
Fimm rétta jólaseðill
Jólaseðill hótelsins er ekki af verri endanum en hann telur fimm rétti sem kitla bragðlaukana. Meðal rétta er pönnusteikt hörpuskel með pressaðri svínasíðu, eplasultu og sellerírót og nautalund með rösti kartöflum, jarðskokkum og rauðvínsgljáa. Jólaseðillinn gildir frá 25. nóvember til 18. Desember.

„Eftir vel heppnaða ferð á Húsafell er svo hægt að setja punktinn yfir iið með heimsókn í Krauma heilsulind, þar er að finna náttúrulaugar með tæru vatni úr Deildartunguhver og tvennskonar gufuböð,“ segir Kristján. Aðeins er um 25 mínútna akstur frá Hótel Húsafelli í Krauma, í leiðinni til baka til Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar um jólaseðil Hótels Húsafells og gjafabréfin er að finna á www.hotelhusafell.is
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Hótel Húsafell
Ferðaþjónusta í Borgarfirði var umfjöllunarefni þáttarins Um land allt á dögunum en þá heimsótti Kristinn Már Unnarsson meðal annars Hótel Húsafell. Horfa má á þáttinn hér fyrir neðan.