Sextán ára stúlka myrt af jafnaldra í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2018 19:16 Sextán ára piltur er í haldi lögreglunnar grunaður um verknaðinn. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty
Sextán ára stúlka lést og fullorðinn karlmaður særðist í hnífstunguárás við íbúðahús í bænum Vinstra í Noregi síðdegis í dag. Sextán ára piltur er í haldi lögreglunnar grunaður um verknaðinn. Bærinn Vinstra er að finna um 80 kílómetrum norðvestur af Lillehammer og tilheyrir sveitarfélaginu Nord-Fron. Pål Andersen hjá lögreglunni segir að tilkynning hafi borist frá sjónarvotti skömmu fyrir klukkan 16 að staðartíma. Árásin átti sér stað utandyra og var hinn grunaði handtekinn skammt frá árásarstaðnum.Íbúar í Vinstra Í frétt NRK er haft eftir lögreglu að ekki verði gefið upp um tengsl hinnar látnu og hins grunaða að svo stöddu. Bæði séu þó norskir ríkisborgarar og íbúar í Vinstra. Hvorugt þeirra hafi áður komið við sögu lögreglunnar. Tæknimenn lögreglu eru nú á vettvangi og er lögregla með meint morðvopn í sinni vörslu. Karlmaðurinn sem særðist ku ekki vera lífshættulega særður. Rune Støstad, svetiarstjóri í Nord-Fron, segir að sérstakt áfallateymi hafi verið sent á vettvang til að aðstoða aðstandendur. „Þetta er mikill harmleikur sem snertir okkur djúpt. Hér þekkjast allir og þetta verður erfitt fyrir lítið samfélag eins og okkar.“
Norðurlönd Noregur Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Sjá meira