
Þórdís Lóa er að grínast
Í greininni, sem er skrifuð í klassískum öfugmælastíl segir Þórdís Lóa meðal annars: „Okkur í meirihlutanum er umhugað um góða, ábyrga og gegnsæja stjórnsýslu þar sem aðgengi að upplýsingum er gott og ákvarðanataka byggir á gögnum.“
Eins og lesendum Fréttablaðsins er kunnugt um hafa fréttir um hið andstæða verið um allar meginstofnanir borgarinnar síðustu mánuði. Orkuveitan er komin í rannsókn eftir að þrír stjórnendur stigu til hliðar, Félagsbústaðir fengu falleinkunn í úttekt Innri endurskoðunar og framkvæmdastjórinn hætti. Gæluverkefni SEA sem heyrir undir skrifstofu borgarstjóra hafa farið úr böndunum þrátt fyrir aðvaranir. Umboðsmaður Alþingis, héraðsdómur og úrskurðarnefnd jafnréttismála hafa öll ályktað um rangar ákvarðanir í stjórn borgarinnar. Starfsmenn vitna í útvarpi um að kjörnir fulltrúar viti ekkert um stöðu mála.
En Þórdís Lóa bætir í og segir: „Það er okkur mikið kappsmál að tryggja fyrirmyndar fjármálastjórn og teljum við það sjást skýrt nú?…“ Í þessu samhengi er gott að kíkja í ársreikninga borgarinnar. Þrátt fyrir að álögur séu í hámarki og góðæristekjur séu meiri en áður safnast upp skuldir í borgarsjóði. Það er ekki sjálfbær rekstur. Þetta veit Þórdís Lóa enda með reynslu í viðskiptum. Skuldir borgarsjóðs hækkuðu á fyrstu sex mánuðum þessa árs um fjóra milljarða. Það er milljón á klukkustund. Takk fyrir.
Eitt fyrsta verk eftir kosningar var að kaupa húseignir fyrir hátt í milljarð í Breiðholtinu án þess að nokkur áætlun væri til um hvað ætti að gera við eignirnar, hvað þá hvað það ætti að kosta. Á sama fundi var samþykkt að taka lán upp á milljarð. Einhverjir hafa bent á að eyðslan sé umfram efni. Og eins og góður grínisti kemur Þórdís Lóa með „pönslænið“ í lokin: „Á meðan meirihlutinn í borgarstjórn leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn, vandaðar áætlanir og breytta stjórnsýslu er ljóst að gagnrýni á því sviði er einfaldlega skot í myrkri.“ Það er dýrlegt grínið. Og dýrt. Það er eins gott að þetta var djók hjá Lóu annars hefði greinin ekki verið grín heldur verið slysaskot í fótinn.
Skoðun

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Gaza sveltur til dauða - Tími bréfaskrifta er löngu liðinn
Magnús Magnússon,Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Steypuklumpablætið í borginni
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir skrifar

Kærum og beitum Ísrael viðskiptabanni!
Pétur Heimisson skrifar

Blæðandi vegir
Sigþór Sigurðsson skrifar

Fái einstaklingar sem eru hættulegir sjálfum sér ekki viðeigandi búsetuúrræði blasir við mikill harmleikur
Elínborg Björnsdóttir skrifar

Hroki og hleypidómar - syngur Jónas Sen?
Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í vistvænni mannvirkjagerð
Guðrún Lilja Kristinsdóttir,Bergþóra Góa Kvaran skrifar

„Nýtt veiðigjald: sátt byggð á hagkvæmni“
Svanur Guðmundsson skrifar

Opinber áskorun til prófessorsins
Brynjar Karl Sigurðsson skrifar

Nærvera
Héðinn Unnsteinsson skrifar

Þegar Dagur lét mig hrasa á gangstéttarhellu
Björn Teitsson skrifar

Þessi jafnlaunavottun...
Sunna Arnardottir skrifar

Heilsuspillandi minnisleysi í boði Sjálfstæðisflokksins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

#BLESSMETA – fyrsta grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Dáleiðsla er ímyndun ein
Hrefna Guðmundsdóttir skrifar