Einfaldar skipulagsvörur Prentsmidur.is kynnir 15. nóvember 2018 09:00 Stílhreinar skipulagsvörur eftir Lilju Rut Benediktsdóttur hafa fengið frábærar viðtökur. Lilja Rut
Lilja Rut Benediktsdóttir hannar og selur skipulagsvörur fyrir heimilið, vinnustaðinn og hvar sem koma þarf reglu á hlutina. Lilja er prentsmiður að mennt og heldur úti vefversluninni prentsmidur.is. „Ég hannaði fyrstu vöruna fyrir þremur árum en svo lá hún lengi ofan í skúffu. Þegar ég gaf mér loks tíma til að prófa að selja á Facebook, gekk svo vel að ég hætti í vinnunni og snéri mér alfarið að þessu,“ segir Lilja Rut.Lilja Rut Benediktsdóttir er prentsmiður að mennt og hannar og selur skipulagsvörur fyrir heimilið. Hún heldur úti vefversluninni prentsmidur.is og rekur Punt og prent í Glæsibæ.VilhelmFyrsta varan var segull á ísskáp þar sem hægt er að skrifa inn viðburði, matseðil o.fl. Fljótlega bættust við fleiri tegundir af seglum, dagatöl, skipulagsplön í ramma, umbunakerfi fyrir krakka og ýmislegt fleira. Vörur Lilju eru stílhreinar og hafa fengið frábærar viðtökur. „Þetta gengur mjög vel. Einfaldleikinn virðist falla vel í kramið hjá stórum hópi fólks,“ segir Lilja. Skipulagsvörurnar koma í ýmsum stærðum og gerðum, og þá tekur Lilja einnig að sér sérpantanir. „Oft vilja viðskiptavinir fá nöfnin á fjölskyldumeðlimum inn á skipulagið. Hjá fyrirtækjum er svo vinsælt að vera með stórt skipulag, til dæmis 70x100 cm. í ramma. Ég er stöðugt að þróa nýjar vörur og mun meðal annars hefja sölu á skipulags-dagbók um miðjan nóvember.“Punt og prent í GlæsibæVefverslunin prentsmidur.is vatt hratt upp á sig og í apríl á þessu ári opnaði Lilja Rut verslunina Punt og prent, í Glæsibæ, þar sem hún selur eigin vörur auk heimilis- og gjafavöru eftir íslenska hönnuði. Verslunin er opin virka daga milli klukkan 13 og 17. „Íslendingar nýta vefverslun mjög mikið en ég fann að margir vilja skoða vörurnar. Ég stofnaði því Punt og prent og hafði samband við nokkra íslenska hönnuði og bauð þeim með. Nú er ég með vörur eftir 16 íslenska hönnuði í versluninni,“ segir Lilja og bætir við að hún taki einnig þátt í sýningum og mörkuðum vefverslana til að kynna vöruúrvalið.Handverk og hönnun í RáðhúsinuPrentsmiður verður á sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu dagana 22. til 26. nóvember og helgina eftir, dagana 1. og 2. desember, á jólamarkaði netverslana í Víkingsheimilinu. Nánar má kynna sér vörurnar á prentsmidur.is og þá er Punt og prent á facebook.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Prentsmidur.is.
Mest lesið Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Lífið Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Lífið Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Tónlist Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Lífið Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ Lífið Fleiri fréttir Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning