Aftenging í sítengdum heimi Lestrarklefinn 15. desember 2025 09:13 Bók Árna Helgsonar, Aftenging, er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Aftenging er fyrsta bók lögfræðingsins Árna Helgasonar og kom út hjá Bjarti á dögunum. Sjöfn Asare hefur þetta að segja um bókina á menningarvefnum Lestrarklefinn.
Aftenging segir frá vinahóp á fimmtugsaldri sem leigir sér lúxuseyjuna Grið til að varpa frá sér áhyggjum af umheiminum og styrkja tengslin sín á milli. En, eins og á það til að gerast í skáldsögum, og stundum í raunveruleikanum, fer ekki allt á þann veg sem ætlað var. Sjöfn Asare fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Lesandi byrjar ferðina með þeim Gunnari og konu hans, en þau hafa verið gift lengi og eiga tvö börn á unglingsaldri. Mikið hefur gengið á hjá þeim í einkalífinu og er fríið út á eyjuna kærkomið, bæði vegna þess að þau þurfa á slökuninni að halda og svo vegna þess að Gunnar á óútkljáð mál við æskuvin sinn, fyrrum handboltastjörnu og núverandi viðskiptamann, sem er á leið með þeim út á eyjuna með konu sinni. Þriðja parið í sexmenningagenginu stendur í skilnaði, svo aðeins eiginkonan þaðan kemur. Þá eru fimmmenningarnir tilbúnir í að aftengjast, því að á eyjunni Grið er ekkert síma- eða netsamband, og markmiðið er að slaka algerlega á í faðmi vinanna án nokkurra utanaðkomandi truflana. Stofudrama framtíðarinnar Aftenging er eins konar nútíma stofudrama þar sem stofan er ekki herbergi í húsi heldur heil eyja sem auðkýfingur hefur byggt upp og leigir fólki til að upplifa eitthvað nýtt. Og ef einhver hefur lesið svo mikið sem eina einustu glæpasögu frá því að Agatha Christie skrifaði And Then There Were None veit, þá á aldrei að fara á eyju. Aldrei nokkurn tímann. Ég geri mér grein fyrir að ég er stödd á eyju akkúrat núna, en ég er að meina litla eyju. Og þá sérstaklega litla eyju sem einhver ríkur og dularfullur á. Sem er ekki hægt að komast af eða á nema með einni útgönguleið sem getur auðveldlega dottið út. Og engu símasambandi. Come on fólk. Ferðin byrjar að allra mati vel, það er grillað, fólk drekkur áfengi og gantast með gamla tíma. Allt virðist ætla að fara á besta veg þar til einhver þarf aðeins að kíkja í símann. Það er nefnilega hægt að klöngrast upp á dranga og ná smá símasambandi í neyð, og nútímamanneskjan metur það að vera ekki nettengdur í smá stund sem mikla neyð. En þá fara vandræðin að laumast fram. Það virðist svo vera sem að heljarinnar gagnaleki skeki samfélagið allt. Fimmmenningarnir ættu að geta látið það sem vind um eyru þjóta, er það ekki, það er ekki eins og þetta venjulega fólk hafi eitthvað að fela? Og allra síst hvert frá öðru, eða hvað? Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Lífið Kraftaverkaaðgerð batt enda á fimm ár af sársauka Lífið Nyrsta barn ársins fæddist fyrsta dag ársins Lífið Morð, nauðgun, kraftaverk, hjónaskilnaðir og Forrest Gump Áskorun Fiðluleikari kærir Will Smith fyrir kynferðislega áreitni Lífið Búinn að sturta sig með fötu síðan í nóvember Lífið Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Bíó og sjónvarp Þarf alltaf „eitthvað til að kjamsa á“ daginn eftir skaup Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Heyra ekkert í Harry og Meghan Lífið Fleiri fréttir Hvað veldur rafmögnuðu hári og hvernig má losna við það? Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Sjá meira