Dómari skipaði Hvíta húsinu í gær að afhenda Jim Acosta, fréttamanni CNN, blaðamannapassa sinn í Hvíta húsið aftur. Acosta var sviptur passanum nýverið. Hvíta húsið sagði hann hafa stjakað við starfsmanni og birti Sarah Sanders upplýsingafulltrúi myndband sem fjölmiðlar hafa sagt að hafi verið átt við.
CNN fór í mál við Hvíta húsið og fleiri vegna málsins. Úrskurður dómarans endurspeglar ekki endanlegan dóm í málinu. Þess í stað ákvað dómarinn einfaldlega að Acosta skyldi fá passa sinn á meðan dómur hefur ekki verið kveðinn upp. Dómarinn sagði þó líklegt að ákvörðun Hvíta hússins fæli í sér brot á meðal annars tjáningarfrelsi fréttamannsins.
Acosta fagnaði úrskurðinum og sagði viðstöddum blaðamönnum að snúa aftur til starfa. Sanders kvað Hvíta húsið mundu framfylgja úrskurðinum og endurskoða verklagsreglur til að tryggja sanngjarna blaðamannafundi í framtíðinni.
