Íslendingar eiga fulltrúa á svæðinu í Las Vegas í dag þegar bandarísku kylfingarnir Tiger Woods og Phil Mickelson mætast í einvígi.
Þessar risastjörnur í golfina keppa í holukeppni og fær sigurvegarinn rúmlega einn milljarð íslenskra króna í sinn hlut. Einvígið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.
Heimasíða Golfsambands Íslands segir frá því að Ólafía Þórunn muni upplifa einvígið í Las Vegas af hliðarlínunni
Rétt um 100 manns fá tækifæri að fylgjast með mótinu á keppnisvellinum í Las Vegas. Ólafía Þórunn fékk boð að vera viðstödd í gegnum vinkonu sína Cheyenne Woods sem er einnig atvinnukylfingur.
Cheyenne og Ólafía voru saman í háskólaliði Wake Forest á sínum tíma og eru því góðar vinkonur. Cheyenne er náfrænka Tiger Woods en faðir hennar og Tiger Woods eru bræður. Cheyenne fékk miða frá frænda sínum á viðburðinni og bauð hún Ólafíu að taka þátt í ævintýrinu.
