Borð leiksins eru alls sjö talsins, eða kannski sex og hálft. Þau eru stór og innihalda oftar en ekki nokkur skotmörk og verkefni.
Það sem er þó skemmtilegast við Hitman 2 er hvað það er hægt að ganga frá skotmörkum leiksins á margan og oftar en ekki hlægilegan hátt. Hvert borð er í raun skemmtigarður þar sem niðurstaðan veltur oftar en ekki á ímyndarafli þess sem er að spila. Þá er hægt að spila sama borð margoft, því að þegar maður klárar það fær maður ákveðin stigafjölda eftir því hvernig gekk og þau stig opna á ný vopn og nýjar leiðir til að leysa verkefni hvers borðs.
Ofan á það koma upp tímabundin borð sem hægt er að spila. Það fyrsta, sem er nú í gangi, gengur út að drepa Sean Bean sjálfan. Konung dauðsfallanna.
Hverju borði fylgja þó fjölmargar áskoranir eins og: Dreptu þennan með þessu, dreptu alla með þessu vopni, vertu alltaf í sömu fötunum og svo koll af kolli. Að elta uppi allar þessar áskoranir getur tekið heillangan tíma en er samt frekar skemmtilegt.
Mér finnst samt ennþá skemmtilegast, eins og í öllum Hitman-leikjunum, að búa mig sem eins manns her í upphafi borðsins og reyna að drepa alla. ALLA!
Það hefur hins vegar aldrei verið erfiðara en nú, því það eru mjög margar persónur í hverju borði.

Hitman 2 lítur vel út. Borðin eru vel hönnuð og stútfull af fólki og leikurinn sjálfur virkar einstaklega vel fínpússaður, ef svo má að orði komast.
Stærsti galli Hitman 2 felst þó án efa í því að það er svo sem ekkert nýtt í honum. Þú getur drepið fólk með fiski og öðru drasli sem á vegi þínum verður en þetta er samt sama formúlan. Ekki það að hún sé eitthvað slæm. Það væri bara gaman að sjá þá reyna eitthvað nýtt með 47.
Ekki endilega bara nýja staði, ný vopn og ný skotmörk. Eitthvað nýtt en ég veit ekki alveg hvað.
Það gekk bara nokkuð vel að koma þessu frá mér.

Samantekt-ish
Þessi er einföld. Ef þú, lesandi góður, hefur haft gaman af fyrri leikjunum um launmorðingjann 47, muntu án efa hafa gaman af þessum. Þeir sem hafa aldrei spilað Hitman-leik munu örugglega skemmta sér vel líka.Þessi leikur má samt ekki vera of vinsæll, því þá gæti einhverjum í Hollywood dottið í hug að gera kvikmynd. Sýnum hófsemi.