Hannes Karl Hilmarsson, formaður Miðflokksfélags Norðausturkjördæmis, segir að stjórnarmenn félagsins hafi rætt saman um fréttir síðustu daga og útilokar ekki að eitthvað muni heyrast frá félaginu. Stjórnarmenn vilji þó bíða þar til öll kurl séu komin til grafar.
Hannes Karl segist ekki geta talað fyrir hönd allra stjórnarmanna en segir að formaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem er þingmaður Norðausturkjördæmis, njóti enn hans stuðnings.

Krefst viðbragða
Einar G. Harðarson, formaður Miðflokksfélags Suðurkjördæmis, segir málið allt „skelfilegt“ og „hið ömurlegasta mál“. Hann segir til umræðu að stjórn félagsins muni halda fund nú um helgina til að ræða málið. Aðspurður um hvort umræddir þingmenn njóti hans stuðnings geti hann ekki tjáð sig um það sem stendur.„Mér þykir mjög vænt um flokkinn og tel að hann geti komið gríðarlega miklu góðu til leiða. Auðvitað verða menn að njóta trausts og geta unnið. Það er enginn tilgangur ef þeir geta ekki unnið.“
Þannig að flokkurinn verður að bregðast við með einhverjum hætti?
„Mér finnst það líklegt, já.“

Eru án efa miður sín
Ekki hefur náðst í Unu Maríu Óskarsdóttur, formann Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis, kjördæmis þingflokks- og varaformannsins Gunnars Braga Sveinssonar, í morgun. Una María tjáði sig hins vegar um málið á Facebook í gær þar sem hún sagði þetta búinn að vera dapurlegan dag að upplifa.„Ég hélt að við værum komin lengra í ja[f]nfréttisbaráttunni og að virða hvert annað. Það fólk sem á í hlut þekki ég bara af góðu einu og það er án efa miður sín,“ segir í færslu Unu.
Hafa ekkert rætt málið
María Ósk Óskarsdóttir, formaður Miðflokksfélags Norðvesturkjördæmis, kjördæmis þingmannsins Bergþórs Ólasonar, segir að stjórn hafi ekki komið saman eða rætt málið eftir að það kom upp. Ekki liggur fyrir hvort að félagið muni koma saman til fundar, enda eru stjórnarmenn dreifðir um allt land. Aðspurð hvort að Bergþór njóti stuðnings hennar, segist hún ekki vilja tjá sig um það að svo stöddu.Viðar Freyr Guðmundsson, formaður Miðflokksfélags Reykjavíkur, vildi ekki svara spurnungum fréttastofu að svo stöddu, en sagðist munu tjá sig um málið þegar „mesta rykið“ væri sest.