Innbrotsþjófar hrintu manni úr hjólastól og rændu hann Birgir Olgeirsson skrifar 27. desember 2018 07:34 Þjófarnir eru ófundnir en vitað hverjir þeir eru. Vísir/Vilhelm
Tveir menn og ein kona brutust inn í íbúð manns sem notast við hjólastól á þriðja tímanum í nótt. Hrinti fólkið manninn úr hjólastólnum og rændu eigum hans, farsíma, tölvu og fleiru. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í dagbók sinni vitað hverjir voru að verki en þau sé ófundin. Þetta gerðist á þriðja tímanum í nótt nærri Hlíðahverfi en skömmu eftir miðnætti voru tveir menn og ein kona handtekin á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur. Voru þau grunuð um líkamsárás en þau höfðu ráðist á dyravörð, og einnig grunuð um ofbeldi og hótanir gagnvart lögreglu. Voru þau vistuð í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Rétt fyrir klukkan tvö í nótt veitti lögregla bifreið eftirför sem hafði ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu. Bifreiðin var stöðvuð skömmu síðar og tvær ungar konur handteknar. Þær eru grunaðar um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Voru þær vistaðar í fangageymslu vegna rannsóknar lögreglu sem tók fram í dagbók sinni að ástand bifreiðarinnar hefði verið áfátt.
Lögreglumál Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Bein útsending: Upplýsingafundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Innlent Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Erlent Fleiri fréttir Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Boða til upplýsingafundar um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Samherji lagði listamanninn Odee Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Þinglok strax eftir helgina Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Sjá meira